

Joni vakti fyrst athygli á þessu á TikTok þar sem myndband af frásögn hennar fékk hátt í milljón áhorf. Hún hefur síðan mætt til Dr. Phil og farið yfir málið.
Í myndbandinu sagði Joni meðal annars að hún hefði kynnst umræddri konu, Ginu, fyrir nokkru síðan og þær náð vel saman. Þær eru báðar 22 ára.
„Það næsta sem ég veit er að hún og pabbi minn eru að sofa saman. Hún er 22 ára og hann 55 ára. Svo verður þessi heimska tík ólétt eftir hann,“ sagði hún en í Dr. Phil-þættinum er faðir hennar, David, reyndar sagður vera 49 ára.
Joni er ósátt við vinkonu sína og segir að hún sé löt og ekki á eftir neinu nema peningum. Þá er hún einnig óhress með föður sinn. „Ef hann vildi yngri stelpur þá hefði hann getað fengið einhverjar aðrar stelpur,“ sagði hún í þættinum.
Viðurkenndi hún að hafa fengið áfall þegar hún komst að því að hún ætti von á stjúpsystkini með fyrrverandi vinkonu sinni.
Gina segir að ástarsamband hennar og föður Joni komi engum við. „Hún heldur því fram að ég sé á eftir peningum og það gerir mig reiða. Peningar koma þessu ekkert við. Samband okkar er heilbrigt og skemmtilegt og ég er að fara að flytja inn til hans,“ sagði hún.
Gina segir að myndbandið sem birtist á TikTok á sínum tíma – en hefur nú verið fjarlægt – hafi valdið henni miklum vandræðum. Hún hafi fengið yfir sig holskeflu af hatursfullum skilaboðum.
David og Gina eignuðust dreng fyrir skemmstu og í frétt New York Post kemur fram að Joni umgangist litla bróður sinn reglulega ef marka má myndbönd sem hún hefur birt á TikTok.