fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Fókus

Maríanna segir skyndilausnum til syndanna – „Gættu þess að láta ekki selja þér hvað sem er“

Fókus
Fimmtudaginn 9. febrúar 2023 20:00

Maríanna Pálsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maríanna Pálsdóttir snyrti- og förðunarfræðingur er nýr pistlahöfundur á DV.

Hún kemur til dyranna eins og hún er klædd. Lesendur eiga því von á hreinskilnum pistlum um snyrtivörubransann og öðru því tengdu.

Maríanna er eigandi Snyrtistofu Reykjavíkur en hún hlaut sérstök verðlaun úr hendi forseta Íslands fyrir framúrskarandi árangur í námi þegar hún útskrifaðist með sveinspróf í snyrtifræði. Maríanna er í meistaranámi sem hún hyggst ljúka vorið 2024.

Einfalt er best og segðu bless við allar skyndilausnir!

Sú snyrtivara sem felur í sér raunverulega töfralausn í einum grænum er ekki til. Krem og aðrar snyrtivörur eru góð leið til að viðhalda húðinni hverju sinni en öldrun hennar er óumflýjanlegt lögmál sem við öll þurfum að sætta okkur við, hvernig sem við svo gerum það. Það sem skiptir mestu máli er að við séum meðvituð um umhirðu húðarinnar á heildrænan hátt, að við hugsum vel um hana alla daga, allan ársins hring. Töfrandi skyndilausnir í formi snyrtivara færa okkur ekkert, nema þá helst hrein vonbrigði.

Heilsurækt, hugleiðsla og almenn skynsemi eru þættir sem við höfum heyrt talað um síendurtekið, enda ekki að ástæðulausu. Það virkar að hreyfa kroppinn, róa hugann, forðast streitu og almenn leiðindi. Þetta eru ekki geimvísindi heldur margsannaðar staðreyndir um mikilvægi þess að vera meðvitaður um hugann, líkamann og sálina. Reykingar, óhófleg áfengisneysla og almennt fúllyndi er ávísun á illa útlítandi húð og ætti það ekki að koma neinum á óvart!

Snyrtivörubransinn er einn stærsti vörumarkaður heims. Á dögunum var ég stödd í Dubai og fór í Dubai Mall en það var ákveðin upplifun að labba inn í slíkan lúxus-heim. Það var þó alls ekki brjálað að gera í Gucci eða Louis Vuitton búðunum en það var hins vegar vart þverfótað fyrir fólki inni í Sephora, vinsælustu snyrtivöruverslun heims. Þar flæddi fólk inn og út í leit að kremum, sápum, förðunarvörum og öðru tilheyrandi. Þetta sagði mér í raun bara eitt; fólk almennt þráir að líta sem best út og vílar ekki fyrir sér að festa kaup á snyrtivörum fyrir tugi þúsunda.

Því segi ég hátt og skýrt: GÆTTU ÞESS AÐ LÁTA EKKI SELJA ÞÉR HVAÐ SEM ER. Vertu með þína húðtegund á hreinu og passaðu að velja húðvörur í takt við það.

Einfalt er oftast best

Þá spyrja sig kannski einhverjir: „Hvernig get ég vitað hvaða húðtegund ég er með?” Jú þú pantar þér tíma í húðgreiningu hjá fagaðila, á snyrtistofu, og kaupir vörurnar þar samkvæmt ráðleggingum.

Snyrtivörur geta verið rándýrar og þá er eins gott að velja rétt og vel svo allar þessar krukkur safnist ekki upp í skápnum heima hjá þér, lítið eða ekkert notaðar. Það vill enginn eyða tugum þúsunda í krem sem passar svo ekki fyrir húðina þína, sem þig jafnvel svíður undan eða sem veldur öðrum óþægindum?

Að velja sér réttu snyrtivöruna er nákvæmnisverk og mikilvægt að vanda vel valið.

Einfalt er oftast best og það er ekkert sem segir að þrjú krem, þrjú serum, tvö augnkrem og sýrur séu gott á andlitið þitt allt í bland þó svo þú sjáir það á TikTok eða Instagram.

Höfundur: Maríanna Pálsdóttir

Fylgstu með henni á Instagram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Jonathan Bailey er kynþokkafyllsti karlmaður heims

Jonathan Bailey er kynþokkafyllsti karlmaður heims
Fókus
Í gær

Kristbjörg kemur til dyranna eins og hún er klædd: „Enginn farði, engin myndvinnsla, engin fullkomin sjónarhorn“

Kristbjörg kemur til dyranna eins og hún er klædd: „Enginn farði, engin myndvinnsla, engin fullkomin sjónarhorn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Patrekur sá „hrikalegar“ myndir af sér og lét minnka varirnar: „Ég er ekki lengur eins og klámstjarna“

Patrekur sá „hrikalegar“ myndir af sér og lét minnka varirnar: „Ég er ekki lengur eins og klámstjarna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrekkjavakan á Instagram – „Ef fólk hættir að gagnrýna mig, svelti ég“

Hrekkjavakan á Instagram – „Ef fólk hættir að gagnrýna mig, svelti ég“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hobbitinn ástsæli er kominn út í nýrri þýðingu – Lestu fyrsta kaflann hér

Hobbitinn ástsæli er kominn út í nýrri þýðingu – Lestu fyrsta kaflann hér
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bon Jovi snýr loksins aftur eftir erfiða aðgerð – Miðarnir seljast eins og heitar lummur

Bon Jovi snýr loksins aftur eftir erfiða aðgerð – Miðarnir seljast eins og heitar lummur
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Svo þarf ég hérna að nefna ákveðinn fíl í bókmenntastofunni“

„Svo þarf ég hérna að nefna ákveðinn fíl í bókmenntastofunni“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum

Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum