fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Segir frásögn Oliviu O‘Brien um meint ástarsamband þeirra lygi

Fókus
Föstudaginn 1. júlí 2022 08:56

Pete Davidson og Olivia O'Brien.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Grínistinn Pete Davidson tekur fyrir að hann hafi deitað söngkonuna Olivia O‘Brien – en hún hélt því fram í hlaðvarpsþættinum BFFs fyrr í vikunni að þau hefðu átt í stuttu ástarsambandi fyrir tveimur árum.

Olivia sagði að hún og Pete hefðu verið að hittast um stutt skeið í október 2020 en hann hefði sagt henni upp í gegnum smáskilaboð þegar hann byrjaði að deita leikkonuna Phoebe Dynevor.

Sjá einnig: Segist hafa átt í stuttu ástarsambandi við Pete Davidson

Talsmaður Pete Davidson sagði í samtali við E! News að þetta væri ekki satt. „Það er ekki sannleikskorn í þessu,“ sagði hann og bætti við að þau hefðu „verið vinir og eytt nokkrum sinnum tíma saman.“

Pete og Phoebe, sem er hvað þekktust fyrir leik sinn í vinsælu Netflix-þáttunum Bridgerton, héldu sambandi sínu leyndu í hálft ár. Það var ekki fyrr en í apríl 2021 þar sem fjölmiðlar greindu frá því fyrst. Parið hætti saman í ágúst 2021. Grínistinn hefur verið í sambandi með raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian síðan í nóvember í fyrra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun