fbpx
Fimmtudagur 13.nóvember 2025
Fókus

Bjóða Seðlabankastjóra til Tene í skiptum fyrir tásumynd

Fókus
Miðvikudaginn 7. desember 2022 13:41

Athugið að myndin er samsett og að tærnar á myndinni eru ekki í eigu Ásgeirs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ákvörðun Seðlabankans um að hækka stýrivexti enn eina ferðina hefur reynst umdeild. Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, freistaði þess að útskýra hagfræðina á bak við ákvörðunina með því að kenna einkaneyslunni um og þá sér í lagi tíðar tásumyndir frá Tenerife. Þessu tóku margir landsmenn óstinnt upp enda bróðurpartur þjóðarinnar heimsótt eyjuna fögru heim og margir kunnu því illa að fá samviskubit yfir því að gera vel við sig.

Í morgun greindi Vísir svo frá því að Ásgeir væri einn þeirra sem að aldrei hefði heimsótt Tenerife. Flugfélagið Play sá sér leik á borði og henti fram tilboði sem Seðlabankastjóri mun eiga erfitt með að hafna.

„Þetta gengur náttúrlega alls ekki. Við viljum endilega bjóða þér Ásgeir Jónsson til Tenerife í skiptum fyrir eina glæsilega tásumynd. Þú verður þó að svara boðinu frekar fljótt þar sem ferðirnar eru geisivinsælar, enda vorum við með um 90% sætanýtingu á Tenerife í síðasta mánuði,“ sagði í færslu flugfélagsins.

Ásgeir er sennilega að pakka Speedo-skýlunni niður í tösku í þessum skrifuðu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Kristjáni blöskraði útfararkostnaður og skrifaði bók – „Hvernig höndlum við dauðann?“

Kristjáni blöskraði útfararkostnaður og skrifaði bók – „Hvernig höndlum við dauðann?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kemur umdeildri leiksýningu í Borgarleikhúsinu til varnar – „Eitt af verkefnum listarinnar er að losa sig undan oki tímans“

Kemur umdeildri leiksýningu í Borgarleikhúsinu til varnar – „Eitt af verkefnum listarinnar er að losa sig undan oki tímans“
Fókus
Fyrir 4 dögum

O heldur áfram að raka inn verðlaunum

O heldur áfram að raka inn verðlaunum
Fókus
Fyrir 4 dögum

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“

Augnlæknar nefna það sem þeir myndu aldrei gera: „Nudda augun“