fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fókus

Eign dagsins: Örlítil íbúð á Kársnesinu þar sem hver fermetri er nýttur til fulls

Fókus
Þriðjudaginn 13. september 2022 18:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margur er knár þótt hann sé smár og þetta á einstaklega vel við íbúð sem nýlega kom á sölu á Kársnesbraut í Kópavogi.

Þar má finna íbúð sem er rétt tæpir 30 fermetrar en segja má með sanni að þar sé hver fermetri nýttur eins og mögulegt er.

Um er að ræða stúdíóíbúð í hverfi sem er í mikilli uppbyggingu en þar skammt frá má finna Sky Lagoon og svo verður stutt að ferðast með Borgarlínunni yfir Fossvogsbrúnna, eftir að hún verður byggð.

Eignin skiptist í forstofu, stofu með eldhúsi, herbergisrými, baðherbergi og geymslu. Útgengt er úr eldhúsrými yfir á svalir sem vísa í norðvestur.

Þarna sannast að þröng geta líklega sáttir sitja og líklega búa. Ásett verð á eigninni eru 29,9 milljónir og fasteignamat er 22,6 milljónir

Nánar má lesa um eignina á fasteignavef DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí

Bókinni ætlað að kynna börn fyrir veiði og gefa skjánum frí
Fókus
Fyrir 3 dögum

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“

Líkaminn setti Önnu í skammarkrók – „Svo slæmt að ég komst ekki fram úr rúminu“