fbpx
Fimmtudagur 03.júlí 2025
Fókus

Áhrifavaldurinn Camilla Rut greinir frá skilnaði í einlægri Instagram-færslu – „Búið ykkur undir single-mom content“

Fókus
Mánudaginn 23. maí 2022 20:35

Camilla Rut

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Camilla Rut Rúnarsdóttir, einn vinsælasti áhrifavaldur landsins, kom fylgjendum sínum á óvart með afar persónulegri tilkynningu fyrir stundu. Segja má að fylgjendur hennar hafi strax séð að eitthvað óvænt væri í vændum því með henni í tilkynningunni á Instagram-story var eiginmaður hennar Rafn Hlíðkvist Björgvinsson sem gerist svo sannarlega ekki á hverjum degi.

Aðdáendur Camy sáu strax að eitthvað óvænt væri í vændum

„Það er semsagt komið að því að þessi yndislegi maður, barnsfaðir minn og besti vinur, ætlar að skila mér,“ segir Camilla Rut í færslunni.

Parið hefur verið saman í 13 ár og eiga þau tvö börn saman. Segir Camilla Rut að þau hafi byrjað saman sem bestu vinir og hætti saman sem bestu vinir.

Þau deila því svo með fylgjendum Camillu Rutar að langur aðdragandi hafi verið að þessari tilkynningu og að þau hafi farið í gegnum allskonar tilfinningar, upp og niður.

„Við erum að setja hamingju okkar og barnanna okkar í forgang og okkur þykir þetta vera það skynsamlegasta í stöðunni,“ segir Camilla Rut ennfremur.

Parið segist ætla að vinna úr skilnaðinum í rólegheitunum. Yfirvofandi sé heimsókn fasteignasala og mörgu öðru sé að hyggja. Þau séu sammála um að það sé léttir að hafa tekið þessa ákvörðun í sameiningu en vissulega séu tímamótin einnig erfið. Þau hafi einfaldlega vaxið í sundur.

„Það eina sem við biðjum um er mildi,“ segir Camilla Rut og Rafn tekur heilshugar undir það. Þá segir Camilla Rut að viðbúið sé að efnið hennar á Instagram-síðunni muni taka u-beygju. „Búið ykkur undir single-mom content,“ segir hún og hlær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva var stoppuð af lögreglunni og kom í Dagbók lögreglunnar – „Æ Eva hættu að ljúga að opinberum starfsmanni“

Eva var stoppuð af lögreglunni og kom í Dagbók lögreglunnar – „Æ Eva hættu að ljúga að opinberum starfsmanni“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Rihanna stórglæsileg á bláa dreglinum við heimsfrumsýningu kvikmyndarinnar Smurfs 

Rihanna stórglæsileg á bláa dreglinum við heimsfrumsýningu kvikmyndarinnar Smurfs 
Fókus
Fyrir 4 dögum

Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og Miss Photogenic 2025

Lilja Sif Pétursdóttir krýnd Miss Supranational Europe og Miss Photogenic 2025
Fókus
Fyrir 5 dögum

Þetta eru bestu bíómyndir aldarinnar samkvæmt sérfræðingum

Þetta eru bestu bíómyndir aldarinnar samkvæmt sérfræðingum
Fókus
Fyrir 5 dögum

Myndirnar sem Katy Perry vill ekki sjá: Orlando Bloom með dökkhærðri þokkadís

Myndirnar sem Katy Perry vill ekki sjá: Orlando Bloom með dökkhærðri þokkadís
Fókus
Fyrir 5 dögum

Yngri konan vill djamma og stunda kynlíf öll kvöld – „Hvað á ég að gera?“

Yngri konan vill djamma og stunda kynlíf öll kvöld – „Hvað á ég að gera?“