fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Segir karlmenn bjóða himinháar fjárhæðir fyrir meydóm hennar

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 11. mars 2021 12:00

Jessica Alves. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sjónvarps- og samfélagsmiðlastjarnan Jessica Alves segir karlmenn bjóða himinháar fjárhæðir fyrir meydóm hennar.

Jessica Alves vakti fyrst heimsathygli fyrir að hafa eytt rúmlega hundrað milljón krónum í fegrunaraðgerðir. Hún var þekkt sem „mannlega Ken-dúkkan“, áður en hún kom út sem transkona í byrjun árs 2020. Nú er hún þekkt sem Jessica Alves, hefur komið fram í fjölda sjónvarpsþátta og er vinsæl á samfélagsmiðlum.

Jessica gekkst nýlega undir kynleiðréttingaraðgerð og sagði frá því í viðtali í breska morgunþættinum This Morning að hún væri ótrúlega ánægð með „nýju píkuna“ sína.

Sjá einnig: Himinlifandi með „nýju píkuna“ og getur ekki beðið eftir því að stunda kynlíf

Í síðustu viku deildi hún nektarmynd af sér í Instagram Story, en var með „tjákn“ fyrir kynfærum og brjóstum. Jessica endaði með að eyða myndinni því í kjölfar myndbirtingarinnar fékk hún fjölmörg tilboð frá karlmönnum sem vildu ólmir „svipta hana meydómnum.“ Hún greinir frá þessu í samtali við Mail Online.

Myndin umrædda. Mynd/MailOnline

„Ég eyddi myndinni því fullt af karlmönnum voru að senda mér skilaboð og ég vissi ekki hvernig ég átti að höndla það. Sumir buðu mér meira að segja pening fyrir að svipta mig meydómnum,“ segir hún.

„Einn maður bauð mér 2,7 milljónir króna! Ég myndi aldrei selja líkama minn. Ég er í leit að ást, ekki pening.“

Jessiaca vonast til að „missa meydóminn“ með einhverjum „sérstökum.“

„Ég vil að sá dagur verði töfrum líkastur og ef ég þarf að bíða eitthvað lengur eftir hinum rétta, þá geri ég það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar