fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Fókus

Matur og heimili: Leyndardómar 20&sjö Mathús bar og draumagarður afhjúpaður

Fókus
Þriðjudaginn 14. september 2021 16:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lífsstílsþátturinn Matur og heimili, í umsjón Sjafnar Þórðar, er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 19 og endursýndur kl. 21. Að þessu sinni heimsækir Sjöfn 20&SJÖ Mathús & bar, veitingastað sem hefur komið á óvart með einstakri matargerð og hefðum.

Veitingastaðurinn er staðsettur í Víkurhvarfi í Vatnsendahverfinu í Kópavogi þar sem við blasir himneskt útsýni yfir Elliðavatn og til fjalla. Boðið er upp á fjölbreyttan matseðil og þar gætir áhrifa frá löndum við Miðjarðarhafið og Bandaríkjunum en sumir réttirnir eiga uppskriftir sínar að rekja til frægra staða eins og Katz´s Delicatessen í New York svo fátt sé nefnt.

Sjá nánar hér

Draumagarður afhjúpaður

Þeir Björn Jóhannsson, landslagsarkitekt hjá Urban Beat, og Hörður Lúthersson, verkstjóri hjá Garðaþjónustunni, sýna Sjöfn útkomuna á draumagarði sem þeir hafa unnið að í sumar. Um er að ræða annan draumagarðinn af þremur sem Sjöfn kynnir sér.

Í hönnuninni og framkvæmdinni er komið til móts við óskir eigenda um stækkun á heimili út í garð, auka nýtinguna og bjóða uppá fjölbreytta útiveru, þar sem skjólveggir eru til mynda með gleri þannig að útsýni innan garðs og utan njóti sín til fullnustu. Tröppur til að setjast í og fegra með fallegum blómakerum og úthugsaða staðsetningu fyrir útieldhús og grill. „Hér er fagurfræðin og notagildið í góðu jafnvægi og svæðin kringum allt húsið hafa hlutverk,“ segir Björn og er alsæll með útkomuna á verkinu.

„Okkur tókst að leysa öll verkefni vel að hendi í þessum garði og með því að fá Björn á staðinn vikulega gátum við strax tekið á öllum vafaatriðum og fundið bestu leiðirnar til að leysa óvæntar áskoranir,“ segir Hörður sem er ánægður með árangursríkt samstarf við hönnuðinn og eigendur við framkvæmdina á garðinum. Svo er nóg rými til að blása til heljarinnar garðveislu með öllu.

Sjá nánar hér

Sem fyrr segir er þátturinn á dagskrá Hringbrautar kl. 19 og 21 í kvöld.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Allir eru að bíða eftir að Hafdís kynni til leiks nýjan kærasta – Gerði þetta í staðinn

Allir eru að bíða eftir að Hafdís kynni til leiks nýjan kærasta – Gerði þetta í staðinn
Fókus
Í gær

Patrekur sá „hrikalegar“ myndir af sér og lét minnka varirnar: „Ég er ekki lengur eins og klámstjarna“

Patrekur sá „hrikalegar“ myndir af sér og lét minnka varirnar: „Ég er ekki lengur eins og klámstjarna“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Komst að fortíð kærustunnar og treystir henni ekki lengur

Komst að fortíð kærustunnar og treystir henni ekki lengur
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hafði kynmök við aðra konu fyrir framan unnusta hennar – Segist hafa gert henni greiða

Hafði kynmök við aðra konu fyrir framan unnusta hennar – Segist hafa gert henni greiða
Fókus
Fyrir 5 dögum

Skilnaðarlögfræðingur um hvort karlar eða konur halda meira framhjá – Svarið gæti komið þér á óvart

Skilnaðarlögfræðingur um hvort karlar eða konur halda meira framhjá – Svarið gæti komið þér á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Allt annað að sjá Brad Pitt – Sjáðu myndina

Allt annað að sjá Brad Pitt – Sjáðu myndina