fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fókus

Stelst í nærföt mágkonunnar og sendir eiginkonunni myndir

Fókus
Föstudaginn 11. júní 2021 21:00

Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Karlmaður skrifar hreinskilið bréf til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun. Deidre segir að athæfið sé mun algengara en fólk grunar.

„Í hvert skipti sem ég heimsæki mágkonu mína þá stenst ég ekki mátið að klæðast nærfötunum hennar,“ viðurkennir maðurinn, sem er 47 ára.

„Ég hef aldrei fundið fyrir þörfinni að klæðast nærfötum eiginkonu minnar en ég held að það sé hluti af spennunni. Við vorum í sömu „búbblu“ og mágkona mín í útgöngubanninu og kíktum reglulega í kaffi til hennar,“ segir maðurinn.

„Eina heimsóknina tók ég eftir hrúgu af hreinum nærfötum. Ég heyrði þær tala saman niðri þannig ég fór úr fötunum og klæddi mig í nærbuxurnar. Eiginkona mín var að spá hvað væri að taka svona langan tíma og kom að mér í nærfötunum. Frekar en að fá áfall þá sagði hún að nærbuxurnar litu vel út á mér og þetta kveikti í henni.“

Þetta er orðið að reglulegu athæfi hjá manninum. „Núna laumast ég upp í hverri heimsókn og tek sjálfsmyndir af mér í mismunandi nærfötum og sendi eiginkonu minni þær.“

Deidre svarar manninum. „Þetta er mun algengara en þú heldur. Margir karlmenn njóta þess að klæðast kvenkyns undirfötum. Fyrir marga tengist þetta jákvæðum æskuminningum.  Það er ekkert að því að þú klæðist kvenkyns nærfötum en vandamálið er að þú ert að klæðast nærfötum mágkonu þinnar án hennar leyfis. Fáðu eiginkonu þína til að kaupa ný nærföt handa þér.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“

„Hann pikkaði mig upp á bar með línunni: Hef ég séð þig áður?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða

Ný rannsókn bendir til heilsufarsáhættu af húðflúrum – Blekið gerir ónæmiskerfinu engan greiða
Fókus
Fyrir 5 dögum

„Ísfólkið hefur oft verið talað niður og kallaðar „húsmæðraklám““

„Ísfólkið hefur oft verið talað niður og kallaðar „húsmæðraklám““
Fókus
Fyrir 6 dögum

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni