„Það er algengur misskilningur að Ramadan snúist eingöngu um að neita sér um mat. Fastan er hins vegar altæk, hún snýst um allan líkamann og hugann líka. Augun fasta – því við horfum ekki á hluti sem við eigum ekki að horfa á. Hendurnar fasta því við eigum að láta óæskilega hluti í friði og fæturnir fasta því við sleppum því að fara á staði þar sem við ættum ekki að vera,“ segir Múhammeð Emin Kizilkaya, Dani af kúrdískum ættum sem búið hefur á Íslandi undanfarin ár.
Föstumánuður múslima hófst í gær en fastan hófst í dag og stendur í 30 daga. Fastan er miðuð við sólarlag og sólarupprás en þar sem sólin sest seint hér á vorin og ekki verður almennilega dimmt miða múslimar á Íslandi fremur við sérstakt franskt tímatal en eiginlegt sólsetur.
„Frá kl. 4:15 á morgnana til 20:10 á kvöldin má ekki neyta neins, hvorki matar né drykkjar, ekki einu sinni tyggja tyggigúmmí. Tilgangurinn með þessu er að við upplifum örlitla þjáningu og fáum þannig innsýn í líðan þeirra sem eru hungraðir eða veikir. Hungurverkirnir sjá til þess. Tilgangurinn er að efla samlíðan og hjálpsemi,“ útskýrir Múhammeð.
Eftir 20:10 á kvöldin og fram til 4:15 um morguninn má hins vegar borða að vild og segir Múhammeð að matarboð hjá vinum séu algeng. „Ég fitna oftast í föstumánuðinum og verð að gæta mín því það eru alltaf matarboð,“ segir hann hlæjandi.
Múhammeð er í raun Dani og fæddist í Danmörku fyrir 26 árum. Móðir hans flutti til Danmerkur þegar hún var þriggja ára en fjölskyldan er kúrdísk og frá Tyrklandi. Eftir stúdentspróf í Danmörku fluttist Múhammeð til Íslands, ekki síst vegna áhuga sína á vondu veðri og merkilegum náttúrufyrirbrigðum. Hann lærði íslensku í eitt ár og fór síðan í félagsfræði, lauk BA-prófi og á stutt eftir í meistaragráðu. Hann hefur einnig starfað mikið sem leiðsögumaður í eigin ferðaþjónustufyrirtæki.
Ein helsta fyrirmynd Múhammeðs er tyrkneski Kúrdinn og stjórnarandstæðingurinn Fethullah Gulen sem Múhammeð segir að hafi verið ranglega ásakaður um valdaránstilraun árið 2016.
„Gulen er sambærilegur við Mandela, frelsishetja sem hefur setið í fangelsi vegna skoðana sinna,“ segir Múhammeð.
Hann segir að Gulen hafi kennt sér umburðarlyndi sem hann nýtir sér þegar hann verður fyrir fordómum vegna útlits síns og þeirrar staðreyndar að hann er múslimi.
„Kærleikur, þolinmæði og umburðarlyndi eru öflugustu vopnin,“ segir Múhammeð og hefur þar Gulen að fyrirmynd. „Ef maður heitir Múhammeð er óhjákvæmilegt að verða fyrir fordómum og fá skrýtnar spurningar. Það gerist á Facebook þar sem ég hef marga fylgjendur en líka á götum úti.“
Múhammeð rifjar upp langt og minnisstætt samtal sem hann átti við öryggisvörð við skyldustörf. Það byrjaði með fremur ögrandi athugasemdum öryggisvarðarins sem leiddi til margra klukkustunda samtals.
„Hann sagði að þar sem ég væri múslimi þá yrði ég drepinn ef ég gengi um götur Reykjavíkur því það væri ekki gott að vera múslimi á Íslandi. Hann gerði allt til að koma mér úr jafnvægi og fá neikvæð viðbrögð hjá mér. Við töluðum saman langt fram á nótt og ég hafði hugfast að sterkasta vopnið gegn fordómum og fáfræði er kærleikur, þolinmæði og umburðarlyndi. Hann faðmaði mig áður en við kvöddumst.“
Múhammeð lenti í enn minnisstæðara atviki er hann tók að sér að aka fjórum eldri borgurum frá Bandaríkjunum að náttúruperlum sunnanlands. Fólkinu brá við er hann mætti á vettvang með sitt dökkleita útlit og ekki batnaði ástandið þegar fólkið komst að því að hann héti Múhammeð. Í ökuferðinni þurfti hann að svara hinum furðulegustu spurningum:
„Ég var til dæmis spurður að því hvort múslimar teldu rétt að berja eiginkonur sínar. Spurningarnar og sleggjudómarnir voru þannig að ég var við það að missa stjórn á skapinu en ég þuldi í huganum aftur og aftur að kærleikur og umburðarlyndi væru vopnin.“
Af þessum fordómafullu og fjandsamlegu athugasemdum og spurningum spruttu margra klukkutíma samræður sem urðu til þess að góð kynni tókust með bandarísku ferðalöngunum og Múhammeð. Daginn eftir pöntuðu þau dökkleita leiðsögumanninn í aðra ferð.
Í lok þeirrar ferðar tók einn út hópnum Múhammeð á eintal. Það var maður sem hafði gengið harðast fram í fordómatalinu daginn áður og var yfirlýstur stuðningsmaður Trumps Bandaríkjaforseta.
Hann sagði meðal annars við Múhammeð: „Ég hef verið fáfróður kjáni alla ævi. Við erum gamalt fólk og höfum ferðast út um allan heim. Það besta við að koma til Íslands var að kynnast þér.“ Síðan föðmuðust mennirnir, sjötugi hvíti Trumpistinn frá Bandaríkjunum, og kúrdíski Daninn sem heitir Múhammeð.
Varðandi öfgafulla múslima og vandamál þeim tengdum í Evrópu segir Múhammeð hins vegar:
„Ég kem úr margra þúsunda manna samfélagi múslima í Danmörku. Af öllum þeim hópi hef ég kannski hitt tvo öfgamenn. En fjölmiðlar vilja selja sína vöru og þeir hafa gaman af því að segja frá vondu köllunum. Rétt eins og öryggisvörðurinn sem ég sagði frá áðan talar ekki fyrir hönd Íslendinga þá eru þessir öfgamenn ekki fulltrúar Íslams.“