fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fókus

Yfirheyrslan – Védís Kjartansdóttir: Geggjaðast að fæða barn

Íris Hauksdóttir
Sunnudaginn 5. janúar 2020 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Védís Kjartansdóttir er með mörg járn í eldinum en hún starfar sem dansari og stefnir á frumsýningu nýs verks í byrjun janúar á stóra sviði Þjóðleikhússins. Henni líður að eigin sögn best heima með fjölskyldunni, að kúra við kertaljós og hafa það huggulegt. Við fengum Védísi í yfirheyrslu helgarinnar.

Hvað óttastu mest
Að missa einhvern sem mér þykir vænt um.

Hvert er þitt mesta afrek
Að fæða barnið mitt. Eitt það erfiðasta og geggjaðasta sem ég hef gert um ævina. Ég ber alveg nýja virðingu fyrir kynsystrum mínum eftir að ég fæddi son minn.

Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér
Það er svo margt furðulegt sem ég geri í vinnunni, en á sama tíma stórskemmtilegt. Eitt dæmi er til dæmis þegar ég var ráðin til að starta dansgólfinu á árshátíð hjá stóru fyrirtæki. Fékk borgað fyrir að mæta í partíið og vera hress og dansa. Alveg ágætis vinna verð ég að segja.

Hver væri titillinn á ævisögu þinni
Védís: Öruggur staður til að vera á.

Hvernig væri bjórinn Védís?
Eins og rauðvín.

Besta ráð sem þú hefur fengið
„Látum okkur ekki leiðast“. Þetta var nú bara sagt við mig í hálfgerðu gríni þegar ég var barn, en þetta er bara svo gott mottó. Þetta er ekkert flókið, maður verður bara að láta hlutina gerast sjálfur, ekki bíða eftir því að einhver annar geri þá fyrir mann.

Hvert er leiðinlegasta húsverkið
Þrífa ofninn. Er nýbúin að taka ofninn í gegn fyrir jólin. Alveg hrikalega leiðinlegt og tímafrekt.

Besta bíómynd allra tíma
The Rock með Sean Connery og Nicholas Cage, það kombó getur náttúrlega ekki klikkað.

Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir
Mig hefur alltaf, síðan ég var barn, langað til að geta flogið og held áfram að óska mér þess. En síðan væri ég líka mjög til í að geta verið södd lengur en klukkutíma í senn.

Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið
Ég held að ég verði að segja þegar ég flutti út til Brussel til að fara í dansnám 19 ára. Hafði ekki hugmynd út í hvað ég var að fara og var frekar naív á þeim tíma, er það samt örugglega ennþá. Eflaust ein besta ákvörðun sem ég hef tekið. Fór bara út með tvær töskur og var ekki komin með húsnæði eða neitt. En það reddaðist allt sem betur fer.

Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér?
„Símtölum verður svarað í þeirri röð sem þau berast“.

Hvaða getur þú sjaldnast staðist eða ert góð í að réttlæta að veita þér?
Súkkulaði. Dökkt, ljóst, hvítt, er til í þetta allt.

Hvað er á döfinni hjá þér

Ég er að æfa nýtt sviðsverk sem ber nafnið Eyður og verður frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins 15. janúar. Þetta er splunkunýtt verk eftir Marmarabörn, eða Marble Crowd, sem er sviðslistahópur sem ég er hluti af. Mjög spennandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“

Margrét Friðriks tekur upp nýtt nafn – „Finnst það koma með ferskan blæ inn ì mitt líf“
Fókus
Í gær

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun

Þjáningar Sævars – Nýtt lag og fjársöfnun
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum

Hún segir þetta vera „náttúrulegt Ozempic“ og margir eiga það nú þegar í eldhússkápnum