fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Steindi gerir „gay-vampírumynd“: „Ég myndi persónulega ekki vilja að amma mín horfði á þessa mynd”

Tómas Valgeirsson
Laugardaginn 14. september 2019 10:00

Steindi jr.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skemmtikrafturinn Steinþór Hróar Steinþórsson, Steindi Jr., vinnur hörðum höndum um þessar mundir að sjónvarpsseríunni Góðir landsmenn. Það sem grínarinn átti þó ekki von á var að annað verkefni bærist honum í hendur á sama tíma; kvikmynd í fullri lengd. Myndin ber heitið Þorsti og lýsir Steindi henni sem „gay vampíru sprautuklámmynd með trúarlegu ívafi“. Áætlað er að frumsýna þessa kvikmynd í næsta mánuði ef allt gengur vel. Kynningarefni fyrir myndina er allt komið í farveg og fór í vinnslu áður en stafur var skrifaður í handritið. En fyrst þarf að ýta á „REC“-takkann.

Verkefnið er unnið í samstarfi við áhugamannaleikhópinn X og Hjört Sævar Steinason, sem hefur verið virkur í jaðarleikhússenunni í Reykjavík. Steindi auglýsti nýverið á samfélagsmiðlum eftir leikstjóra til að leikstýra myndinni og gekk leitin vel að sögn grínarans.

„Ég er búinn að leita að leikstjóra og það er ein stelpa sem heitir Kristín sem vann hjá Fróni, hún hefur mikinn áhuga á þessu. Hún hefur ekki mikla reynslu en hefur allavega séð fjölda hryllingsmynda, þannig að ég held að hún setji svolítið ferskan blæ á þetta.“

Steindi segist þó vera þrælvanur að vinna undir álagi og segir ferlið ekki vera neitt nýtt hjá sér, þó svo að yfirvofandi frumsýning sé á tæpasta vaði. „Við fórum til Sambíóanna og þeir gáfu okkur dagsetningu. Það var 25. október og ég veit að það er ógeðslega stutt í þetta. Við erum ekki með „trailer“ og við erum ekki með myndina, enda ekki búnir að ýta almennilega á „REC“ ennþá. Það er allt í gangi og allt á milljón. Þetta er mjög mikið stress. Ég á fyrst og fremst að vera að einbeita mér að sjónvarpsseríu,“ segir hann.

Skuldadagar kvikmyndabransans

Varningurinn kominn. Næst þarf bara að hefja tökur.

Kveikjan að Þorsta kom frá því að búa til verkefni fyrir áhugamannaleikhópinn X og ekki síst Hjört Sævar, sem að sögn Steinda á trúlega ekki langt eftir ólifað. Þorsti kynni að verða hans fyrsta og síðasta mynd.

„Þau í hópnum eru búin að vera aukaleikarar í meira en tíu ár og örugglega búin að leika í fleiri myndum samanlagt en allir leikarar á Íslandi. Þau fá sjaldnast línur og eru hópur af aukaleikurum,“ segir Steindi.

„Þau eru búin að gera ýmislegt saman og tóku meira að segja upp heila sjónvarpsseríu. Serían heitir Hótel hamingja. Þau fóru með þættina upp á Stöð 2, upp á RÚV, út um allt og fengu alltaf hart nei. Allar dyr eru alltaf lokaðar hjá þessu fólki. Ég ætlaði bara að gera minn viðtalsþátt og þá hitti ég þennan aukaleikara og hann sagði mér frá þessu. Ég fór og talaði við Þórhall Gunnarsson, forstjóra Sýnar og minn yfirmann, og ég spurði hann hvort hópurinn hefði sótt um hjá þeim og það stemmdi allt.

Ég spurði hvort ekki væri hægt að koma þeim fyrir á morgnana, eftir miðnætti eða eftir barnatímann. Það gæti hafa verið smá vitleysa í mér að hafa lofað Hirti að ég gæti reddað þessu. Ég ákvað þá að gera með honum og leikhópnum hans heila bíómynd. Mér finnst kvikmyndabransinn á Íslandi hreinlega skulda þessu fólki tækifæri, línur og aðalhlutverk.“

Þá segir Steindi að áhugamannaleikhópurinn sé í fullum undirbúningi núna að æfa textana sína. „Hjörtur á mjög erfitt með að læra texta og leggja hann á minnið. Svo var ég mjög þakklátur fyrir að fá Kristínu þarna inn,“ segir hann.

Hjörtur Sævar Steinason

Lofar „ógeðslega“ miklu blóði

Steindi lýsir Hirti sem æðislegum manni með ótrúlega sögu. „Hann lenti í bílveltu fyrir þónokkuð mörgum árum og eftir það hefur hann átt erfitt með að muna texta. Hann er að glata vondum minningum og líka þessum góðu, enda almennt með slæmt minni,“ segir hann.

„Ég veit að ég á bara að einbeita mér að þessum sjónvarpsþætti, en það er eitthvað í mér sem segir að ég verði að klára þessa mynd fyrir félaga minn. Ég hefði verið til í að hafa hana mikið seinna, en við fengum þessa dagsetningu og þurfum að standa við hana.“

Steindi viðurkennir þó að Þorsti sé ekki kvikmynd sem sé ætluð hverjum sem er, enda „gay-vampírumynd“ og sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

„Þetta er „splatter“-mynd og ég get lofað ógeðslega miklu af blóði. Ég myndi persónulega ekki vilja að amma mín horfði á þessa mynd. Hún verður alltaf bönnuð innan 16, alveg 100 prósent. Það kæmi mér í rauninni ekkert á óvart ef hún yrði bönnuð yfirhöfuð,“ segir Steindi.

Við erum ekki að elta kvikmyndahátíðir með þessari mynd. Þetta á að vera hreinræktað popp-og-kók bíó. Þetta er mynd fyrir fólk sem elskar að horfa á bíó og vera skíthrætt. Ég held að hvert einasta barn á Íslandi verði skíthrætt við Hjört eftir að hafa horft á þessa mynd. Hann er óhugnanlegur fyrir.“

Þá bætir grínarinn við að myndin sé alls ekki dýr, þvert á móti afar ódýr og krefst þá framleiðslan sniðugra lausna við hvert horn. „Ég veit ekki hvort ég eigi að þora að segja töluna en það er alveg pottþétt hægt að kaupa þónokkra bragðarefi í miðstærð fyrir þennan „budget“-pening,“ segir hann og krossleggur fingur fyrir að frumsýning náist í tæka tíð.

„Ég er þannig, að ef ég byrja á einhverju þá verð ég að klára það og ég ætla að klára þessa mynd! Hún kemur í bíó í næsta mánuði, sama hvað og hvernig hún verður, þótt ég þurfi að skjóta endinn á henni á Samsung-símann minn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“