fbpx
Fimmtudagur 18.desember 2025
Fókus

Vertu með í jóladagatali HIITFIT – „Sýndu þakklæti og hrósaðu öðrum“

Sara Barðdal Þórisdóttir
Mánudaginn 10. desember 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Barðdal Þórisdóttir er ÍAK einkaþjálfari, heilsumarkþjálfi og stofnandi hiitfit.is. Hún hjálpar konum að verða heilsuhraustari og hamingjusamari í gegnum námskeið og þjálfanir á vegum hiitfit.is 

Í desember er jóladagatal á síðunni þar sem þú færð hugmyndir að stuttum og raunsæjum skrefum til þess að halda líkamlegri og andlegri heilsu í góðu jafnvægi fram að jólum – og inn í nýja árið.

Glugginn fyrir 4. desember bauð upp á Jólagóðverk, að hrósa öðrum.

Jólagóðverk

Skref dagsins: Hrósaðu í það minnsta þremur einstaklingum í dag!

Byrjaðu daginn á þakklæti, sýndu þakklæti, vertu opin fyrir því jákvæða í kringum þig og reyndu að sjá það jákvæða hjá öðrum. Láttu fólk vita þegar það gerir góða hluti.

Af hverju? Rannsóknir hafa sýnt að þau sem sýna og upplifa þakklæti á degi hverjum eru jákvæðari, upplifa meiri lífsgleði, sofa betur, eru umhyggjusamari og blíðari og vísbendingar eru um að þakklæti hafi einnig styrkjandi áhrif á ónæmiskerfið. Það að sýna þakklæti snýst ekki bara um stóru hlutina, eins og að vera þakklát fyrir óvæntan glaðning, nýjan fjölskyldumeðlim eða stöðuhækkun, heldur að finna það jákvæða í daglegu hlutunum sem við veitum ekki endilega mikla athygli. Finndu þakklætið fyrir venjulega heppni eins og bara það að lenda á mörgum grænum ljósum í desembertraffíkinni, það að fá ótrúlega ferskan og góðan fisk í fiskbúðinni eða einfaldlega bara fyrir það að fá að eiga yndislegt heimili og drekka hreint vatn beint úr krananum.

Verkefni dagsins er að gefa þetta þakklæti lengra, sjá það jákvæða við manneskjurnar í kringum okkur. Látum fólk vita þegar það gerir hlutina vel eða hefur góð áhrif á okkur, hver veit nema við getum deilt gleðinni með hrósi og þakklæti til þeirra sem snerta líf okkar í dag.

Skrá má sig í jóladagatalið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Laufey skellti sér á uppistand ári á undan áætlun

Eva Laufey skellti sér á uppistand ári á undan áætlun
Fókus
Fyrir 2 dögum

Uppnám í Ungfrú Ísland: „Get ekki lengur setið undir þessari framkomu“

Uppnám í Ungfrú Ísland: „Get ekki lengur setið undir þessari framkomu“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma

Vikan á Instagram – Ældi á miðjum tónleikum og nú mega jólin koma
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“

Ólöf óttast um dóttur sína: „Ég byrjaði að kalla á hjálp strax þegar hún var sjö ára en það vildi enginn hlusta á mig eða trúa mér“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Var Michael Jackson hafður fyrir rangri sök?

Var Michael Jackson hafður fyrir rangri sök?
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor

Bókaspjall: Klisjufrítt svæði, hlaðið húmor
Fókus
Fyrir 1 viku

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni

Djúpt snort­in yfir því að ís­lenska þjóð­in tók þátt í leit­inni
Fókus
Fyrir 1 viku

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs

Ragnhildur segir betra að gera þetta en vera meganæs