fbpx
Föstudagur 19.september 2025
Fókus

Venjulegt Fólk slær í gegn – met slegið í Sjónvarpi Símans í síðustu viku

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 6. nóvember 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gamansama þáttaröðin Venjulegt fólk var frumsýnd í heild sinni í Sjónvarpi Símans Premium á föstudag og hefur heldur betur slegið í gegn því þáttaröðin var spiluð yfir 50 þúsund sinnum á aðeins þremur dögum og náðust yfir 700 þúsund spilanir í Sjónvarpi Símans Premium í síðustu viku, meira en nokkru sinni fyrr og hafði Venjulegt fólk veruleg áhrif á þennan spilunarfjölda. 

Sjónvarp Símans Premium er stærsta íslenska efnisveitan og telur nú um 37 þúsund viðskiptavini – sem hafa fallið fyrir hinni bráðskemmtilegu gamanseríu Venjulegu fólki.

Lestu einnig: Venjulegt fólk forsýningarpartý – Sjáðu myndirnar

Venjulegt fólk er gamansöm þáttaröð um dramað sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna. Að upplifa frægð og frama er ekki bara dans á rósum heldur hefur það ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þær, fjölskyldu og vini.

Með aðalhlutverk fara þær Vala Kristín, Júlíana Sara (Þær tvær), Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst. Vala og Júlíana skrifa þættina ásamt Dóra DNA og Fannari úr Hraðfréttum en hann leikstýrir einmitt þáttunum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Gjörbreyttur Jelly Roll nýtur lífsins á Ítalíu

Gjörbreyttur Jelly Roll nýtur lífsins á Ítalíu
Fókus
Í gær

Birti myndir af sjúkrabeði – Systirin hvetur hana til að vera sterk

Birti myndir af sjúkrabeði – Systirin hvetur hana til að vera sterk
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hneyksluð yfir verðinu á Starbucks – Þetta borgaði hún fyrir tvo

Hneyksluð yfir verðinu á Starbucks – Þetta borgaði hún fyrir tvo
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hyldýpi – Þeysireið um myrkur mannheima

Hyldýpi – Þeysireið um myrkur mannheima
Fókus
Fyrir 3 dögum

Nýtt myndband af stjörnuhjónunum vekur mikla reiði

Nýtt myndband af stjörnuhjónunum vekur mikla reiði
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform