fbpx
Mánudagur 01.desember 2025
Fókus

Elín Kára – „Jólin mín eru á mínum forsendum“

Elín Kára
Þriðjudaginn 6. nóvember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir búa sér til hefðir í kringum jólin og margir eru fastir í gömlum hefðum sem verða að vera, öðruvísi koma ekki jólin. Svo er til fólk sem gerir aldrei það sama um hver jól. Að mínu mati er allt gott og gilt, hvað svo sem menn velja sér.

Mér finnst aðalatriðið vera að fólk haldi jólin út frá sínum forsendum. Sínum tímafjárhag og aðstæðum.

Ef hefðin er farin að kosta þig meiri pening en þú ert til í að eyða, þá mun hún ekki skila góðri tilfinningu. Þá stjórnar hefðin en ekki þú. Er hefðin þess virði?

Engar hátíðir eiga að snúast um það að koma þér í skuldir til þess eins að sýna einhverjum öðrum að þér þykir vænt um viðkomandi. – Jim Carrey

Hefðir eru skemmtilegar. Þær framkalla einhverja nostalgíutilfinningu og maður heldur í hefðir vegna þess að þær framkalla óútskýranlega góðar tilfinningar. Þetta er samt vand með farið, að ríghalda í hefðir því aðstæður geta breyst; einhver er í útlöndum, einhver verður hluti af annarri fjölskyldu, einhver deyr eða einhver getur ekki mætt.

Ég hef unnið með aðstæður mínar á hverju ári og bý til eitthvað skemmtilegt út frá þeim á hverju ári. Þannig að jólin hjá mér hafa ekki verið eins í einhver 4 eða 5 ár. Og það er bara ótrúlega gaman.

Til dæmis erum við hjónin núna með lítil börn sem fara að sofa upp úr kl. 20 á kvöldin. Við ætlum ekki að rembast við að halda börnunum vakandi eingöngu til þess að opna pakka. Þessi jólin verða sennilega einhverjir pakkar opnaðir milli forrétts og aðalrétts, og svo restin verður opnuð daginn eftir. Á næsta ári verða þau einu ári eldri og skilja meira hvað er að gerast – þá verður eitthvað annað form á jólunum okkar. Allt miðað við aðstæður hverju sinni.

Jólakortið 2014

Ég er alin upp við rjúpur en eftir að ég hef haldið jólin sjálf heima hjá mér, þá hefur aldrei verið það sama í matinn. Og það er bara skemmtilegt – jólin hafa samt alltaf komið

Ég hvet þig til að setja sjálfa/n þig í fyrsta sæti á jólunum. Ef þig langar í jólaboð – þá skaltu fara, annars ekki. Ef þig langar að hafa kjúklingasalat í matinn – gerðu það (ég gerði það einu sinni og það var æði).

Hafðu jólahátíðina þína eftir þínu eigin höfði.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

10 merki um að makinn sé að halda framhjá þér með samstarfsfélaga

10 merki um að makinn sé að halda framhjá þér með samstarfsfélaga
Fókus
Í gær

Miklar getgátur uppi um samband frægasta hægri öfgamanns Bretlands og stjörnu úr Nágrönnum

Miklar getgátur uppi um samband frægasta hægri öfgamanns Bretlands og stjörnu úr Nágrönnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Mælir ekki með því að missa meira en kíló á viku – Þetta er ástæðan

Mælir ekki með því að missa meira en kíló á viku – Þetta er ástæðan
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hildur Kristín: Þarft ekki tíu skrefa morgunrútínu til að lifa góðu lífi

Hildur Kristín: Þarft ekki tíu skrefa morgunrútínu til að lifa góðu lífi
Fókus
Fyrir 5 dögum

Fyrrverandi eiginmaður Jóhönnu Guðrúnar allt annað en sáttur með Mannlíf – „Fyrirgefið, þetta er bara ofbeldi“

Fyrrverandi eiginmaður Jóhönnu Guðrúnar allt annað en sáttur með Mannlíf – „Fyrirgefið, þetta er bara ofbeldi“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Konungsfjölskyldan brjáluð yfir teboði prinsessunnar

Konungsfjölskyldan brjáluð yfir teboði prinsessunnar