fbpx
Miðvikudagur 11.júní 2025
Eyjan

Segir það blasa við að „samstöðudans stjórnarmeirihlutans“ sé sérlega stirður milli tveggja flokka

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 10. júní 2025 07:47

Hildur Sverrisdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Sverrisdóttir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir verkstjórn og vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar hafa verið svo ábótavant á  núverandi þingi að útilokað sé að öll mál séu tæk til lokaafgreiðslu á þessu þingi. 

Það verður því áskorun fyrir ríkisstjórnina að forgangsraða málum sínum fyrir þinglok,segir Hildur í pistli sínum í Morgunblaðinu.

Rifjar hún upp að forsætisráðherra hafi sagt í stefnuræðu sinni að það væri „full eining“ í ríkisstjórninni um „öll þau mál sem birtast í þingmálaskrá“. Stjórnarliðar hafa síðan ítrekað sagst vera meira samstiga en gengur og gerist og því yrðu verkin látin tala. Ýmislegt bendir þó til hins gagnstæða enda hafa verkin alls ekki talað heldur í ýmsu þagað þunnu hljóði.

Segir Hildur að við þinglok séu hagræðingartillögur, sem forsætisráðherra talaði um í stefnuræðu sinni nær hvergi sjáanlegar. 

Í stefnuræðu sagði forsætisráðherra að þær tíu þúsund tillögur sem bárust ríkisstjórninni um hagsýni í ríkisrekstri væru þegar farnar að skila árangri „með því að seytla um stjórnkerfið og samfélagið allt“. Auðvelt er að giska á hverju það sætir.

Mánuður hafi liðið þar til fjárauki um áherslumál ríkisstjórnarinnar sem afgreiddur afgreiddur var úr ríkisstjórn hafi verið sett á dagskrá þingfundar í dag, 10. júní. Af því verður ekki annað ráðið en að frumvarpið hafi setið fast í þingflokkum stjórnarliða allan þennan tíma.

Hildur telur fram fleiri dæmi eins og frumvarp félagsmálaráðherra um að binda þróun almannatrygginga við launavísitölu. Við meðferð málsins barst minnisblað frá fjármálaráðuneytinu þar sem fram koma áhyggjur um sjálfvirknivæðingu ríkisútgjalda og sjálfbærni opinberra fjármála. Það er vert að nefna að ekkert er til sem heitir „álit fjármálaráðuneytisins“. Allt sem þaðan kemur er í nafni og á ábyrgð fjármálaráðherra – þess sem situr í sömu ríkisstjórn og ráðherrann sem lagði frumvarpið fram,“ segir Hildur.

Annar flækjufótur er frumvarp atvinnuvegaráðherra um strandveiðar þar sem fram kemur að skoða þurfi minnkun á leyfilegum dagskammti til að tryggja 48 daga veiðar. Þingmaður Flokks fólksins stígur þá fram og segir um mistök ráðuneytisins að ræða, slíkt komi ekki til greina. Sem er áhugavert í ljósi þess að frumvarpinu var dreift og rætt í þingsal án þess að þessi orð í frumvarpi ráðherra hafi þar verið dregin til baka,“ segir Hildur.Það blasir við að samstöðudans stjórnarmeirihlutans er sérlega stirður á milli Flokks fólksins og Viðreisnar. Á meðan hefur Samfylkingin tekið svo marga snúninga á stefnu sinni að henni virðist það létt að halla sér í þá átt sem vindurinn blæs hentugast þann daginn. Algjör viðsnúningur stjórnarliða í málum eins og til að mynda bókun 35, leigubílamálinu, ESB og sölunni á Íslandsbanka hefur vakið athygli sem og samþykkt útlendingamála fyrri ríkisstjórnar, mála sem þingmenn Samfylkingar og Viðreisnar höfðu svo gott sem bannfært á síðasta þingi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Furðulegt háttalag ríkisforstjóra um nótt

Orðið á götunni: Furðulegt háttalag ríkisforstjóra um nótt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“

Gunnar Smári um uppgjörið í Sósíalistaflokknum – „Ég var búinn með minn tíma“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Umræðu lyft á hærra plan