fbpx
Laugardagur 24.maí 2025
EyjanFastir pennar

Óttar Guðmundsson skrifar: Fótboltinn

Eyjan
Laugardaginn 13. júlí 2024 06:00

Óttar Guðmundsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég hef alltaf fylgst með fótbolta af miklum áhuga. Alinn upp í Laugarneshverfinu svo að Fram var mitt félag. Náði reyndar aldrei neinum frama á fótboltavellinum og tilheyrði „ruslinu“ sem síðast var valið í lið. Brennandi áhugi og ástríða fyrir íþróttinni voru þó alltaf fyrir hendi. Ég fylgdist með HM frá árinu 1958 þegar Svíar töpuðu fyrir Brasilíu. Úrslitaleikurinn 1966 er minnisstæður þegar Englendingar unnu Þjóðverja með dyggri aðstoð rússneskra línuvarða sem mundu enn þá orrustuna við Stalíngrað. Þá áttaði ég mig á öllu svindlinu í kringum leikinn. Tíminn hefur liðið og ég hef langdvölum setið límdur við skjáinn á EM og HM og ótal öðrum kappleikjum. Einu sinni reiknaði ég út hversu miklum tíma ég hefði varið í fótboltann og útkoman var skelfileg. Ég áttaði mig á því að hefði ég notað þennan tíma til t.d. tungumálanáms kynni ég í dag bæði portúgölsku og swahili og hrafl í öðrum málum.

Stundum var gaman en með árunum hefur fótboltinn orðið æ leiðinlegri. Yfirstandandi Evrópumót slær þó öll fyrri met í leiðindum. Varnarsinnuð lið standa áhugalaus í kringum miðjureitinn. Markaskorun er í algjöru lágmarki. VAR-dómgæslan hefur svo endanlega gengið frá leiknum. Dæmd eru víti á minniháttar brot þegar dómarinn er búinn að glápa á endursýningu tíu sinnum. Fótboltinn er hægt og bítandi að snúast upp í jazzballet þar sem menn falla við minnstu snertingu á dramatískan hátt. Leiðinlegasta lið keppninnar er komið í úrslitaleikinn með dyggri aðstoð dómaranna eins og 1966.

Nú er ég endanlega hættur að horfa á fótbolta. Ég ætla í framtíðinni að verja þessum tíma í jóga og innhverfa íhugun og reyna að sættast við allan þennan glataða tíma sem fór í dapurlega knattspyrnuleiki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Ísland og Rómarkirkjan

Björn Jón skrifar: Ísland og Rómarkirkjan
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaða með pólitískt sjálfsofnæmi

Sigmundur Ernir skrifar: Stjórnarandstaða með pólitískt sjálfsofnæmi
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að flensa afturendann
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Traust er undirstaða réttláts samfélags

María Rut Kristinsdóttir skrifar: Traust er undirstaða réttláts samfélags
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra málsháttamálið

Óttar Guðmundsson skrifar: Stóra málsháttamálið
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Björn Jón Skrifar: Um gagnsemi prófa

Björn Jón Skrifar: Um gagnsemi prófa
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Sigmundur Ernir skrifar: Ótti íhaldsaflanna við vit og vísindi

Sigmundur Ernir skrifar: Ótti íhaldsaflanna við vit og vísindi
EyjanFastir pennar
20.04.2025

Björn Jón skrifar: Að vera kristið samfélag

Björn Jón skrifar: Að vera kristið samfélag
EyjanFastir pennar
19.04.2025

Svarthöfði skrifar: Sendu nú vælubíl að sækja mig!

Svarthöfði skrifar: Sendu nú vælubíl að sækja mig!