„Stærstu tíðindin eru þau að ríkisstjórnin fellst á sameiginlegar breytingartillögur allra flokka í stjórnarandstöðu við örorkufrumvarp félagsmálaráðherra. Stjórnarmeirihlutinn stefnir að afgreiðslu lögreglulaga og frumvarps um stofnun Mannréttindastofnunar en frumvarpi um slit ÍL-sjóðs verður frestað að kröfu stjórnarandstöðu.“
Bent er á að frumvörpum um lagareldi og breytingar á sóttvarnarlögum verði einnig frestað auk frumvarpa um vindorku og raforkulög þar sem stjórnarflokkarnir náðu ekki saman.
„Þá má nefna að kröfu Flokks fólksins verða engar breytingar gerðar varðandi nýtingu persónuafsláttar eldra fólks sem er búsett erlendis nema að undangenginni athugun efnahags- og viðskiptanefndar,“ segir í tilkynningunni.
Þar segir enn fremur:
„Stjórnarandstaðan gekk sameinuð til þinglokasamninga og fagnar árangri þeirra. Þar munar mestu um að sameiginlegum lágmarkskröfum stjórnarandstöðu um breytingar á örorkufrumvarpi verður mætt að verulegu leyti:
- Heimilisuppbót hækkar þannig að enginn öryrki verður í verri stöðu en áður.
- Hnykkt verður á því að enginn sem er nú þegar með örorkumat verði þvingaður í svokallað „samþætt sérfræðimat“ – sem enn hefur ekki verið útfært.
- Alþingi fær skýrslu frá ráðherra um útfærslu á þessu nýja mati áður en það verður innleitt og velferðarnefnd mun fjalla um það.
- Sett verður inn ákvæði um endurskoðun á áhrifum virknistyrks á stöðu öryrkja í atvinnuleit.
Ríkisstjórnin féllst ekki á að afnema skerðingu á tekjum öryrkja vegna fjármagnstekna maka að svo stöddu en málið verður tekið til skoðunar í samstarfi fjármála- og efnahagsráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis.
Stjórnarandstaðan harmar að samgönguáætlun hafi ekki verið kláruð vegna innbyrðis óeiningar hjá ríkisstjórnarflokkunum. Sú áætlun sem var lögð fram var algjörlega ótæk til afgreiðslu.“