fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Segir að sigur Guðlaugs Þórs geti veikt ríkisstjórnarsamstarfið

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 1. nóvember 2022 09:00

Bjarni og Guðlaugur Þór takast á um formannsembættið.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er mikið undir í samfélaginu hvort það verður Guðlaugur Þór Þórðarson sem sigrar í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins eða Bjarni Benediktsson. Ríkisstjórnarsamstarfið mun standa verr að vígi ef Bjarni tapar og hættir í stjórnmálum.

Þetta er mat Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðings. Í samtali við Fréttablaðið sagði hún að ríkisstjórnarsamstarfið geti laskast ef Guðlaugur Þór sigrar.

Hún sagði að ef Bjarni tapar og hætti í stjórnmálum muni það væntanlega þýða að stjórnarsamtarfið verði endurmetið. Yfirlýsingar Guðlaugs um að hann vilji lækka skatta og draga úr ríkisútgjöldum falli ekki endilega vel að stjórnarsáttmálanum. „Það er mjög mikið undir og ég er undrandi á þessu framboði Guðlaugs Þórs. Það væri allt annað uppi á teningnum ef það drægi að alþingiskosningum eða ef Bjarni hefði íhugað að stíga til hliðar,“ sagði hún.

Ólafur Þ. Harðarson, stjórnmálafræðingur, sagði að styrkur Bjarna felist í að hann hafi leitt flokkinn í ríkisstjórn óslitið síðan 2013. Hann sagði vísbendingar um að Guðlaugur meti það sem svo að hann eigi allnokkra möguleika á að sigra. „Maður myndi ætla að Guðlaugur ætti undir högg að sækja, í ljósi þess mikla árangurs Bjarna að tryggja flokknum sæti í ríkisstjórn svo lengi. En það er varasamt að vanmeta Guðlaug. Hann er með mjög öflugan her stuðningsmanna og líklegt að hann hafi kortlagt landsfundarfulltrúa vel. Mér þykir líklegt að Guðlaugur telji að hann eigi þokkalega möguleika, að vinna, eða tapa með litlum mun,“ sagði Ólafur.

Hægt er að lesa nánar um málið í Fréttablaðinu í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki