fbpx
Fimmtudagur 12.júní 2025
Eyjan

Sigmar Guðmundsson í öðru sæti hjá Viðreisn

Bjarki Sigurðsson
Fimmtudaginn 27. maí 2021 13:28

Sigmar Guðmundsson Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, leiðir framboðslista flokksins í Suðvesturkjördæmi (Kraganum) fyrir komandi þingkosningar sem fara fram þann 25. september næstkomandi.

„Ég er gríðarlega stolt af þessum öfluga lista hjá okkur hér í Kraganum og er afar spennt fyrir næstu mánuðum í kosningabáráttu með þessum fjölbreytta og skemmtilega hópi. Komandi kosningar munu snúast um það hvernig samfélag við viljum byggja hér til framtíðar og það hvort almannahagsmunir ráði þar för eða sérhagsmunir. Áherslur okkar í Viðreisn eru alveg skýrar. Við setjum almannahagsmuni framar sérhagsmunum með frjálslyndi og jafnrétti að leiðarljósi í baráttunni fyrir réttlátu samfélagi,“ segir Þorgerður Katrín.

Það vekur athygli að Sigmar Guðmundsson skipar 2. sæti listans en hann er þekktur fyrir störf sín í fjölmiðlum. Þetta er frumraun hans á hinu pólitíska sviði.

„Ég hef unnið í fjölmiðlum í nærri 30 ár og fjallað mikið um pólitík í mínum störfum. Það er því mjög spennandi fyrir mig að söðla um og vera virkur þátttakandi í stjórnmálum þótt það verði vissulega erfitt að kveðja minn gamla vinnustað sem hefur gefið mér svo mikið. Mínar skoðanir fara vel saman við stefnu Viðreisnar, þar sem frjálslyndi er lykilhugtak, auk þess sem ég hef mikið álit á fólkinu sem hefur borið uppi starfið þar. Flokkurinn vill stokka upp gömul kerfi og setja almannahagsmuni framar sérhagsmunum og ég hlakka til að leggja mín lóð á vogaskálarnar í þeirri baráttu,“ segir Sigmar.

Framboðslisti Viðreisnar í Suðvesturkördæmi:

1. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Hafnarfjörður
2. Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður. Garðabær
3. Elín Anna Gísladóttir verkfræðingur. Mosfellsbær
4. Thomas Möller, verkfræðingur og ráðgjafi. Garðabær
5. Ástrós Rut Sigurðardóttir þjónustufulltrúi. Hafnarfjörður
6. Rafn Helgason, umhverfis- og auðlindafræðingur. Garðabær
7. Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir lögmaður. Kópavogur
8. Jón Ingi Hákonarson bæjarfulltrúi. Hafnarfjörður
9. Sigrún Jónsdóttir flugfreyja. Hafnarfjörður
10. Guðlaugur Kristmundsson þjálfari. Garðabær
11. Kristín Pétursdóttir, sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hafnarfjörður
12. Ívar Lilliendahl læknir. Mosfellsbær
13. Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir sölufulltrúi. Hafnarfjörður
14. Hermundur Sigurðsson raffræðingur. Hafnarfjörður
15. Soumia I Georgsdóttir framkvæmdastjóri. Kópavogur
16. Þórólfur Heiðar Þorsteinsson lögmaður. Kópavogur
17. Sigríður Sía Þórðardóttir forstöðumaður. Kópavogur
18. Jón Gunnarsson háskólanemi. Garðabær
19. Auðbjörg Ólafsdóttir, yfirmaður samskipta. Hafnarfjörður
20. Páll Árni Jónsson stjórnarformaður. Seltjarnarnes
21. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir dagskrárgerðarkona. Reykjavík
22. Magnús Ingibergsson húsasmíðameistari. Mosfellsbær
23. Þórey S Þórisdóttir doktorsnemi. Hafnarfjörður
24. Eyþór Eðvarðsson ráðgjafi. Álftanes
25. Theodóra S Þorsteinsdóttir, fyrrverandi alþingismaður. Kópavogur
26. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra. Reykjavík

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni

Sigmundur Ernir skrifar: Þetta er það sem stórútgerðin fær í afslátt hjá þjóð sinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Furðulegt háttalag ríkisforstjóra um nótt

Orðið á götunni: Furðulegt háttalag ríkisforstjóra um nótt
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Þetta var kannski viðbúið, en ekki eru þetta gleðitíðindi“

„Þetta var kannski viðbúið, en ekki eru þetta gleðitíðindi“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden

Er Trump búinn að tapa sér endanlega? – Stórfurðuleg færsla hans um aftöku Biden