fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Eyjan

Áhrif HM á umferð í Reykjavík -Bifreiðum snarfækkaði á götum borgarinnar

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 28. júní 2018 14:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þátttaka Íslands á HM í Rússlandi hafði áberandi áhrif á bílaumferð í Reykjavík á meðan á leikjum landsliðsins stóð, samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurb0rg.  Skrifstofa samgöngustjóra og borgarhönnunar hefur umsjón með TASS skynjurum, sem telja bíla á Hringbraut við Njarðargötu.

Venjulega fara um 1.800 bifreiðar á klukkustund á laugardögum austur eftir Hringbraut við Njarðargötu en það gerðu aðeins 200 bílar á meðan leik Íslands og Argentínu stóð milli klukkan tólf og þrjú þann 16. júní sl.

Föstudaginn 22. júní áttust Nígería og Ísland við á vellinum og um leið og leikurinn hófst klukkan þrjú dró verulega úr umferð. Venjulega aka þar um 2.000 bifreiðar á klukkustund en talan féll niður í 400 bíla. Umferðartoppur sem iðulega er í kringum fjögur á föstudögum varð að þessu sinni fyrir leik.

Þriðjudaginn 26. júní keppti svo Ísland við Króatíu og áhrifin leyndu sér ekki því umferðartoppur sem oftast er síðdegis varð ekki fyrr en eftir leik um kvöldið. Fram kemur að margir hafi verið í bænum að horfa á leikinn, í vinnunni, utandyra, í bíóum og á veitingastöðum. Fjöldi bíla datt úr 1.350 á klukkustund í 250 á meðan á leiknum stóð þennan dag.

Mælingar á góðviðrisdeginum í Reykjavík

Miðvikudaginn 13. júní var sérlega gott verður í Reykjavík, heiður himinn og blíða. Þetta hafði áhrif á hegðun borgarbúa og það kom fram á reiðhjólaumferðamælum. Í Nauthólsvík mældust 1.825 reiðhjól á stígnum en daginn eftir þegar veðrið hafði breyst aftur hjóluðu aðeins 514 þennan stíg.

Blíðviðrið hafði einnig áhrif á heimsóknir í Grasagarðinn en 13. júní fóru 1.560 inn í hann en aðeins 318 daginn eftir.

Veðrið hefur mikil áhrif og það er ekki nema von að það sé algengt umræðuefni meðal fólks.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Svandís þarf ekki að leita langt yfir skammt að samstarfsaðila

Orðið á götunni: Svandís þarf ekki að leita langt yfir skammt að samstarfsaðila
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Athugasemd frá VR vegna umfjöllunar Orðsins á götunni um launakjör verkalýðsforstjóra

Athugasemd frá VR vegna umfjöllunar Orðsins á götunni um launakjör verkalýðsforstjóra
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Að standa vörð um vestræn gildi

Björn Jón skrifar: Að standa vörð um vestræn gildi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hallgrímur Helgason: Auðvörn allra tíma – Samtök fjármagnseigenda í sjávarútvegi beita leppum sínum

Hallgrímur Helgason: Auðvörn allra tíma – Samtök fjármagnseigenda í sjávarútvegi beita leppum sínum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Reiptog lýðræðis og hagsmuna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Furðulegt háttalag ríkisforstjóra um nótt

Orðið á götunni: Furðulegt háttalag ríkisforstjóra um nótt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir

Þröstur Ólafsson: Útgerðin felur gróðann með skúffufélögum í skattaskjólum – ósvífnar hótanir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin

Musk hættur hjá Trump – Töluðu ekki saman undir lokin