Þrettán manns sóttu um stöðu bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar, en nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks ákvað að auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra, sem tekur við af fráfarandi bæjarstjóra, Gísla H. Halldórssyni, oddvita Í-listans. Sjálfur hefur Gísli sóst eftir bæjarstjórastöðu í öðrum sveitarfélögum, til dæmis í Ölfusi, Fjarðabyggð, á Akureyri og Seyðisfirði.
Umsækjendur í stafrófsröð eru eftirfarandi:
Ágúst Angantýsson, M.Sc. umhverfis- og auðlindastjórnun
Ármann Halldórsson sviðsstjóri
Ármann Jóhannesson byggingarverkfræðingur
Berglind Ólafsdóttir ráðgjafi
Einar Örn Thorlacius lögfræðingur
Glúmur Baldvinsson, M.Sc. alþjóðasamskipti
Guðmundur Gunnarsson framkvæmdastjóri
Guðrún Anna Finnbogadóttir, sjávarútvegsfræðingur og M.Sc umhverfisstjórnun
Linda Björk Hávarðardóttir verkefnastjóri
Miguel Martins MBA
Runólfur Ágústsson framkvæmdastjóri
Þórdís Sif Sigurðardóttir, sviðsstjóri stjórnmála- og fjármálasviðs
Þórður Valdimarsson viðskiptafræðingur