fbpx
Sunnudagur 16.nóvember 2025
Eyjan

Leitin að Gísla

Egill Helgason
Mánudaginn 29. október 2007 16:02

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

getfile.jpeg

Í dag er öld liðin frá fæðingu Gísla á Uppsölum. Gísli er stórkostlegasta uppgötvun í íslensku sjónvarpi fyrr og síðar. Mesta skúbbið.

Sjónvarpið reis hæst þegar það fann mann sem átti ekkert sjónvarp.

Síðan hafa margir sjónvarpsmenn leitað að nýjum Gísla en ekki fundið. Sumir eru eins og þeir séu alltaf að leita að Gísla.

En hann var aðeins til í einu eintaki. Ómar Ragnarsson er held ég að fara yfir efnið sem hann tók með Gísla. En það er víst ekki alltaf auðvelt að skilja hvað karlinn er að segja.

Annars eru mér minnisstæð orð sem Ólafur Hannibalsson lét falla í útvarpsviðtali fyrir mörgum árum. Ólafur bjó í Selárdal ásamt öðrum Ólafi og svo Gísla. Þeir voru aðeins þrír í dalnum.

Litlir kærleikar voru með Ólöfunum svo þeir höfðu helst samskipti í gegnum Gísla.

En Ólafur sagði semsagt um Gísla í téðu viðtali:

„Hann var eiginlega ekki vitund skrítinn. Hann lenti bara í þessu.“

Það er fallegt í Selárdal eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.

dsc04039.JPG

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins

Orðið á götunni: Falleinkunn fyrir Guðrúnu – afturhaldið situr á þingi undir merkjum Sjálfstæðisflokksins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera

Dagur B. Eggertsson: Vextir á framkvæmdalánunum fjórfaldir hér á landi – látið eins og ekkert sé hægt að gera
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins

Svarthöfði skrifar: Þolinmæði þrotin gagnvart óhæfum, vanstilltum og spilltum silkihúfum á toppi kerfisins
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk

Fast skotið í Háskóla Íslands: Dauðadómur yfir bók Steinunnar Kristjánsdóttur – fræðilegt fúsk