fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
433Sport

Formaður Vals staðfestir skipti Gylfa en lætur þung orð falla um hann – „Sýndi Gylfi bæði liðsfélögum sínum og félaginu öllu mikla vanvirðingu“

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 18. febrúar 2025 11:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Björn Steinar Jónsson formaður knattspyrnudeildar Vals segir að Gylfi Þór Sigurðsson hafi sýnt félaginu og leikmönnum Vals mikla vanvirðingu um helgina. Þetta kemur fram í bréfi sem 433.is hefur undir höndum.

Björn sendi stuðningsmönnum bréfið eftir að ljóst varð að Gylfi færi í Víking og staðfestir félagaskiptin.

„Í síðustu viku fór af stað atburðarrás í kjölfar þess að Gylfi og hans fólk tjáðu okkur að hann vildi fara frá félaginu. Í kjölfarið sýndi Gylfi bæði liðsfélögum sínum og félaginu öllu mikla vanvirðingu með frammistöðu sinni þegar hann bar fyrirliðabandið í síðasta leik gegn ÍA. Það var ekki sá Gylfi sem við þekkjum,“ segir Björn.

Hann kveðst hafa rætt við leikmenn Vals og þá sem koma að liðinu.  „Það var mat stjórnar eftir samtöl við leikmenn og aðila í kringum hópinn að með þessari framkomu hefði orðið ákveðinn trúnaðarbrestur milli leikmannsins og hópsins,“ segir í bréfi Björns til stuðningsmanna.

Hvað Björn á við með þessu er óvíst en hann heldur áfram og segir „Víkingur og Gylfi Þór náðu síðan saman um kaup og kjör og er því ljóst að Gylfi er ekki lengur leikmaður Vals,“ segir Björn:

DV/KSJ

Bréf Björns til stuðningsmanna:
Kæru Valsmenn.

Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum samþykktum við í stjórn knattspyrnudeildar tilboð sem bárust í Gylfa Þór Sigurðsson leikmann okkar í gær. Voru það tilboð frá bæði Víking Reykjavík og Breiðablik. Víkingur og Gylfi Þór náðu síðan saman um kaup og kjör og er því ljóst að Gylfi er ekki lengur leikmaður Vals.

Í tilefni þessa og þeirrar umræðu sem mun nú fara af stað teljum við mikilvægt að þið stuðningsmenn séuð upplýstir um okkar sjónarmið í málinu. Við gerum okkur grein fyrir því að þessi ákvörðun er umdeild og hún var ekki auðveld.
Mikilvægast er að hafa í huga að það er enginn leikmaður sem spilar fyrir Val stærri en félagið okkar. Valur er í okkar huga stærsta og sigursælasta íþróttafélag landsins sem státar af árangri sem öll önnur íþróttafélög landsins öfunda okkur af.

Þrátt fyrir áhuga annarra liða stóð ekki til að selja Gylfa Þór í vetur. Gylfi er frábær leikmaður og karakter og hefur verið frábær í alla staði eftir að hann kom til okkar.

Í síðustu viku fór af stað atburðarrás í kjölfar þess að Gylfi og hans fólk tjáðu okkur að hann vildi fara frá félaginu. Í kjölfarið sýndi Gylfi bæði liðsfélögum sínum og félaginu öllu mikla vanvirðingu með frammistöðu sinni þegar hann bar fyrirliðabandið í síðasta leik gegn ÍA. Það var ekki sá Gylfi sem við þekkjum. Það var mat stjórnar eftir samtöl við leikmenn og aðila í kringum hópinn að með þessari framkomu hefði orðið ákveðinn trúnaðarbrestur milli leikmannsins og hópsins.

Í okkar huga var því ekkert annað í stöðunni en að hámarka það sem félagið gat fengið fyrir leikmanninn. Í kjölfarið komu síðan tvö ásættanleg tilboð frá Breiðablik og Víking Reykjavík sem náði síðan samkomulagi við Gylfa eftir að við gáfum þeim leyfi til þess að ræða við leikmanninn.
Við teljum okkur vera með einn sterkasta hópinn í deildinni og það er afar mikilvægt að fjölga leikmínútum okkar leikmanna, sem hafa verið frá vegna meiðsla. Við höfum fengið flottar styrkingar inn í liðið í vetur og ætlum okkur að styrkja liðið frekar. Framundan er spennandi tímabil þar sem við erum m.a. í evrópukeppni og liðið hefur æft vel í vetur og leikmenn sem hafa verið frá eru að koma til baka.

Nú er það strákanna í liðinu, og okkar allra í Val, að snúa bökum saman og sýna fólki hversu öflugt félag við erum.
f.h. stjórnar knattspyrnudeildar Vals
Björn Steinar Jónsson

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“

Guardiola hundfúll og öfundar United og Tottenham – ,,Höfum barist gegn þessu í níu ár“
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“

Brynjar tjáir sig um þann umdeilda sem er sagður hata Íslendinga – ,,Hann var kannski í einhverju stríði“
433Sport
Í gær

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“

Arnar um að velja ekki Gylfa – „Ég hef ekkert rætt við hann“
433Sport
Í gær

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með

Nýr landsliðshópur Arnars vekur athygli: Anton Ari fær kallið – Albert og Aron Einar með