fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Pressan

Átta merki þess að barnið þitt (og aðrir ástvinir þínir) sé narsissisti

Pressan
Mánudaginn 27. janúar 2025 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Narsissismi er alvarleg persónuleikaröskun sem getur haft miklar og neikvæðar afleiðingar fyrir aðstandendur þeirra sem glíma við röskunina. Varasamt er að nota hugtakið yfir einhvern sem sýnir einkenni narsissisma, án þess þó að tikka í öll böx þeirrar skilgreiningar sem hugtakið fellur undir.

Á vef DailyMail í dag er grein eftir Tinu Chummun geðlækni, þar sem hún ræðir um átta merki sem benda til þess að barnið eða unglingurinn þinn sé narsissisti.

„Narsissísk ungmenni eru oft tilfinningalega sveiflukennd og skilja eftir ringulreið og truflun vegna hegðunar sinnar. Sálfræðilega séð varpa ungmenni oft óhamingju sinni og innri óróa yfir á foreldra sína og kenna þeim um óánægju í lífi sínu,“  segir Chummun. Hún segir slíka hegðun venjulega tilkomna vegna áfalla og hegðunar í æsku sem barn hefur lært af aðalumönnunaraðila sínum, eða einhverjum í nánasta umhverfi þess.

„Þetta þýðir að ef barnið þitt er narsissisti er líklegt að einhver annar í lífi þess og þínu sé það líka.“

Tina Chummun

Hér eru viðvörunarmerkin átta sem Chunnum segir að leita megi eftir og hvernig á að takast á við þau.

Honum finnst hann eiga rétt á einhverju

Narsissisti gerir ráð fyrir að heimurinn færi honum allt og gefur ekkert á móti.

Sambandið er eins og einhliða viðskipti, narsissistinn býst við stöðugum stuðningi, fjárhagsaðstoð eða ívilnandi meðferð án endurgjalds eða þakklætis. 

Þessi hegðun getur stafað af ofdekri í æsku, eða því að hafa ekki fengið þarfir sínar uppfylltar, sem veldur því að barnið vill bæta upp fyrir skort með þessum hætti.

Hvernig á að takast á við? Komdu væntingum þínum skýrt fram til að stjórna þessari hegðun án þess að virkja hana. Þú þarft að standa fast á þínu, án þess að missa stjórn á skapi þínu.

Hann skortir samkennd

Sýnir barnið þitt litla umhyggju fyrir öðrum? Þrátt fyrir að þeir gefi frá sér viðbrögð þegar við á, þá einbeitir narsissistinn sér eingöngu að eigin löngunum. 

Dæmi gæti verið dóttir sem hunsar krabbameinsgreiningu móður sinnar en talar stanslaust um eigin starfsvanda. Þegar móðir hennar snýr samtalinu að heilsu sinni vísar dóttirin þeim á bug og snýr um ræðunni aftur að sjálfri sér.

Hvernig á að takast á við? Hvetja til sjálfsígrundunar með því að móta samkennd og viðurkenna reynslu sína. Segðu: Mér skilst að þú sért undir miklu álagi í vinnunni, en ég þarf líka stuðning þinn núna. Ef þeir halda áfram að umræðunni að sjálfum sér, er rétt að leita stuðnings og samkenndar hjá öðrum.

Hann stjórnar þér

Narsissistinn notar sjarma sinn til að fela það að gerðir hans þjóna eingöngu honum sjálfum. Þegar þú áttar þig á þessu gætirðu fundið fyrir því að hafa verið notaður. 

Hvernig á að takast á við? Viðurkenna að það er verið að nota þig. Segja má við narsissistann að þér líði illa þegar traust þitt er misnotað. Ef það gengur ekki þá er rétt að nota orðið nei.

Hann er uppfullur af sjálfsdýrkun

Býst barnið við aðdáun án þess að hafa unnið til hennar? Er það hrokafullt og alltaf að reyna að skara fram úr öðrum?

Ef svo er gæti þetta verið narsissískur eiginleiki sem bætir upp viðkvæma sjálfsvitund. 

Hvernig á að takast á við? Ekki kynda undir hugmynd narsissistans um mikilvægi hans. Betra er að tala um að allir í hópnum séu metnir jafnt og allir fái sömu meðferð. 

Mynd: Getty

 

Hann getur ekki tekið gagnrýni

Reynsla úr æsku gæti hafa ýtt undir þennan eiginleika eða kannski hefur barnið alltaf verið svona. Narsissistinn gæti brugðist við í vörn, reiði eða afneitun við jafnvel uppbyggilegri endurgjöf og litið á hana sem árás.

Hvernig á að takast á við? Taktu skýrt fram að endurgjöf og gagnrýni er ekki persónuleg árás.  Talaðu um ást þína til barnsins  á meðan þú gefur uppbyggjandi gagnrýni en ef átökin byrja að snúast gegn þér ekki svara í sömu mynt.

Stöðug þörf fyrir samþykki

Margir búa yfir rótgrónum ótta við að vera ekki nóg. Hjá barninu þínu gæti þetta komið fram sem stöðug leit að hrósi eða fullvissu frá þér, vinum sínum eða samfélagsmiðlum, oft á kostnað raunverulegra tengsla.

Dæmi um það væri barn sem hringir í móður sína nokkrum sinnum á dag til að monta sig af nýjustu afrekum sínum og verður sorgmætt ef hún hrósar því ekki stöðugt. 

Hvernig á að takast á við? Veittu barninu viðurkenningu án þess að gera of mikið úr henni. 

Hrósaðu eða gefðu viðurkenningu aðeins einu sinni, ekki ítrekað í hvert skipti til að ýta undir egó barnsins.

Hann notfærir ást þína

Narsissisti gæti misnotað ást þína og notað þig án þess að taka tillit til þarfa foreldris eða systkina. 

Hvernig á að takast á við? Settu heilbrigð mörk ykkar á milli og haltu þig við þau.

Hann vill stjórna öllu

Chummun tekur hér dæmi um fullorðna dóttur skjólstæðings síns sem vill stjórna öllu þáttum fjölskyldusamkomu, allt frá matseðlinum til gestalistans.  Þegar móðirin leggur til breytingu, eins og að bera fram annan eftirrétt, hótar dóttirin að mæta ekki. 

Hvernig á að takast á við? Forðast að taka þátt í valdabaráttu. Móðirin gæti til dæmis bent dótturinni á að hún kunni að meta tillögu dóttur sinnar, en henni finnist einnig gaman að skipuleggja fjölskyldusamkomuna. Hún vonist til að dóttirin mæti, en skilji það vel ef hún þarf sitt næði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Eigandi nuddstofu grípur til aðgerða og bannar karlmenn – Ástæðan er þessi

Eigandi nuddstofu grípur til aðgerða og bannar karlmenn – Ástæðan er þessi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Íranar leita að fólki til að fremja hryðjuverk á Norðurlöndunum og Þýskalandi

Íranar leita að fólki til að fremja hryðjuverk á Norðurlöndunum og Þýskalandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Karlmaður glímir við gríðarlega sjaldgæft ofnæmi – Er með ofnæmi fyrir eigin fullnægingum

Karlmaður glímir við gríðarlega sjaldgæft ofnæmi – Er með ofnæmi fyrir eigin fullnægingum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Indversk flugvél sendi út neyðarkall – Var að verða eldsneytislaus

Indversk flugvél sendi út neyðarkall – Var að verða eldsneytislaus
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fundu lík í fjallshlíðinni – Aðeins 5 metrum frá kom annað í ljós

Fundu lík í fjallshlíðinni – Aðeins 5 metrum frá kom annað í ljós
Pressan
Fyrir 3 dögum

Maður með háleitt markmið – Tekst honum að heimsækja alla 6.500 staðina?

Maður með háleitt markmið – Tekst honum að heimsækja alla 6.500 staðina?