fbpx
Mánudagur 23.júní 2025
433Sport

Bók um Hannes Halldórsson kemur út í vikunni – „Hvað eftir annað hékk ferillinn á bláþræði“

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 11. nóvember 2024 09:00

Screenshot

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Saga Hannesar Þórs Halldórssonar leikstjóra og fyrrverandi landsliðsmarkvarðar er engri lík. Hannes lék sem atvinnumaður í knattspyrnu víða um lönd og var lykilmaður í sögulegum árangri karlalandsliðsins á EM 2016 og HM 2018. En leið Hannesar á toppinn var þyrnum stráð.

Það er Magnús Örn Helgason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Gróttu sem ritar bókina. Bókin er væntanlegir í allar helstu verslanir í vikunni.

Á unglingsárum glímdi Hannes við erfið meiðsli, tæknileg færni hans var takmörkuð og hvað eftir annað hékk ferillinn á bláþræði. En Leiknisstrákurinn í skræpóttu markmannstreyjunni sigraðist á öllu mótlæti og stóð að lokum á stærsta sviði knattspyrnunnar andspænis sjálfum Lionel Messi.

Í bókinni fjallar Hannes einnig um störf sín í kvikmyndaiðnaðinum en hann hefur meðal annars leikstýrt bíómyndinni Leynilögga og sjónvarpsþáttaröðinni Iceguys.

Bókin er prýdd fjölda mynda sem margar hafa ekki komið áður fyrir almenningssjónir. Hannes Þór – handritið mitt er skemmtileg og fróðleg bók um það hvernig hægt er með seiglu og ódrepandi viljastyrk að ná markmiðum sínum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Forráðamenn Arsenal pirraðir og gætu horft annað

Forráðamenn Arsenal pirraðir og gætu horft annað
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Allt klappað og klárt – Yfirgefur Liverpool sem getur þó keypt hann til baka

Allt klappað og klárt – Yfirgefur Liverpool sem getur þó keypt hann til baka
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum
Höfnuðu Southgate
433Sport
Í gær

Zubimendi átti gott samtal við Arteta – Beðið eftir tilkynningunni

Zubimendi átti gott samtal við Arteta – Beðið eftir tilkynningunni
433Sport
Í gær

Losa fleiri miða á leiki Íslands – Kosta um 6 þúsund kall

Losa fleiri miða á leiki Íslands – Kosta um 6 þúsund kall