fbpx
Laugardagur 27.desember 2025
Fréttir

Allt í háaloft eftir íbúðarkaup í miðbænum

Jakob Snævar Ólafsson
Fimmtudaginn 19. september 2024 12:41

Lóðin við Njarðargötu 61 í Reykjavík en þar stendur til að byggja þriggja hæða hús með átta íbúðum. Í bakgrunni má sjá glitta í Skólavörðustíg 44a en kaupendur íbúðar í því húsi segjast ekki hafa verið upplýstir um byggingaráformin. Mynd: Skjáskot/Já.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kaupendur íbúðar í miðbæ Reykjavíkur eru ósáttir eftir að hafa ekki verið upplýstir um að til stæði að byggja nýtt þriggja hæða hús á lóð þar sem nú er hús sem tilheyrir sömu húsaröð og húsið þar sem íbúðin er. Seljandi íbúðarinnar segist aldrei hafa verið upplýstur um breytingu á deiliskipulagi þar sem þessi bygging var heimiluð og kærði málið til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Í úrskurði nefndarinnar vegna málsins segir að kæran hafi borist 13. september síðastliðinn. Afsalshafi íbúðar í tvíbýlishúsi á lóð númer 44A við Skólavörðustíg kærði ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur frá 23. maí á þessu ári um breytingu á deiliskipulagi vegna lóðar númer 61 við Njarðargötu. En húsin á viðkomandi lóðum eru samtengd í sömu húsalengju en á milli þeirra er hús númer 46 við Skólavörðustíg.

Deiliskipulagsbreytingin var auglýst í Stjórnar­tíðindum 6. júní síðastliðinn. Í henni fólst breyting á byggingarreit Njarðargötu 61 svo mögulegt væri að byggja þrjár hæðir og ris á lóðinni með allt að átta íbúðum, byggingarmagn aukist og nýtingar­hlutfall hækki. Segir í úrskurðinum að tillagan hafi verið grenndarkynnt fyrir seljandanum með bréfi dagsettu 12. apríl síðastliðinn sem sent hafi verið á lögheimili hans. í bréfinu hafi verið veittur frestur til að koma athugasemdum á framfæri fram til 22. maí.

Hafi dvalið erlendis

Seljandinn  sagði í kæru sinni að hann sé með skráð tímabundið aðsetur erlendis en haldi þó lögheimili á Íslandi samkvæmt reglugerð um réttindi og skyldur manna sem dveljast erlendis við nám. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi hafi verið „kynnt“ fyrir honum með einu bréfi sem ekki liggi fyrir að hafi borist á lögheimili hans. Önnur tilkynning hafi ekki borist, hvorki rafrænt né með öðrum leiðum. Seljandinn segir að hann hafi nú selt íbúð sína og séu kaupendurnir ósáttir við að hafa ekki verið upplýstir um þær framkvæmdir sem standi til.

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála neitaði hins vegar að taka kæruna fyrir á þeim grundvelli að hún hafi borist of seint. Sagði nefndin að frestur til að kæra sé 4 vikur eftir að hin kæranlega ákvörðun er kynnt opinberlega. Það hafi verið gert með auglýsingunni í Stjórnartíðindum 6. júní og kærufresturinn hafi því runnið út 6. júlí en seljandinn lagði fram kæruna 13. september.

Kærunni var því vísað frá nefndinni.

Hvaða áhrif það hefur á söluna á íbúðinni liggur ekki fyrir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið

Sakamál ársins I: Sjúkratryggingasvindlarinn, meintur banamaður Geirfinns nafngreindur og það sem þú vissir ekki um Gufunesmálið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar

Sambýlisfólk í góðri trú handtekið við komuna heim frá Alicante vegna mistaka Lyfjastofnunar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Færa menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar 2 milljónir króna

Færa menntunarsjóði Mæðrastyrksnefndar 2 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þurfti að fara í hart eftir að húðflúrarinn neitaði að ljúka verkinu

Þurfti að fara í hart eftir að húðflúrarinn neitaði að ljúka verkinu
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna

Stálu næstum öllu efninu af Spotify og ætla að gefa það frítt – Gervigreindin mun fitna
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“

Guðrúnu líst ekki á blikuna: „Íslensk mannanafnahefð hefur látið mikið á sjá“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“

Gunnar sakar saksóknara um meiðyrði og hótar málsókn – „Háttsemi þín verður tilkynnt yfirmönnum þínum hjá LRH“
Fréttir
Fyrir 4 dögum

Faðirinn í Suður-Afríku – „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduharmleikur“

Faðirinn í Suður-Afríku – „Þetta er fyrst og fremst fjölskylduharmleikur“