fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Sótt að Guðna að sitja áfram og hann virðist ekki útiloka það

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 27. mars 2024 06:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, hefur fengið áskoranir og hvatningar um að endurskoða þá ákvörðun sína að hætta sem forseti í sumar.

Guðni tilkynnti í nýársávarpi sínu að hann hygðist láta staðar numið að loknu sínu öðru kjörtímabili og hafa þó nokkuð margir boðið sig fram til forseta að undanförnu.

Morgunblaðið segir frá því í dag að margir hafi hvatt Guðna til að sitja áfram, þar á meðal fólk sem Guðni hefur hitt á förnum vegi og á mannamótum. Þá hafi forsetaembættinu borist tölvupóstar um þetta.

Guðni er staddur í fríi í útlöndum en sagði í tölvupósti til Morgunblaðsins að hann hefði fengið áskoranir, beiðnir og spurningar um hvort hefja megi söfnun undirskrifta en sjálfur hafi hann ekki léð máls á slíku.

„Sem fyrr er ég þakklátur fyrir góðan stuðning. Ákvörðun um að láta gott heita er hins vegar það stór að henni verður ekki breytt nema afar ríkar ástæður séu til þess,“ segir Guðni en ekki liggur fyrir hvaða „ríku ástæður“ þurfi til að hann endurskoði ákvörðun sína.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“

Segir stjórnendur Landspítalans segja ósatt – „Undan þeim svíður.“
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“

Jón Pétur reitir starfssystur sínar til reiði – Ása Berglind opnar sig – „Ég var barn þegar ég eignaðist barn“
Fréttir
Í gær

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið
Fréttir
Í gær

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás – Tveir í haldi
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?

Týndist á fimmtudag eftir árás frá öðrum hundi – Hefur þú séð Bellu?
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“

„Þetta myndi stuðla að stöðugra húsnæðisverði til lengri tíma“