fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Ræðir hugsanlega endurkomu Gylfa í landsliðið – „Hann hefur rétt á sínum tilfinningum“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 18. mars 2024 19:32

Gylfi Þór Sigurðsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helgi Fannar Sigurðsson skrifar frá Búdapest

Landsliðsframherjinn Alfreð Finnbogason vonast til þess að sjá Gylfa Þór Sigurðsson í íslenska landsliðinu á ný í framtíðinni, en sá síðarnefndi var svekktur að vera ekki með í hópnum sem mætir Ísrael á fimmtudag.

Ísland og Ísrael mætast í undanúrslitum umspils um sæti á EM á fimmtudag. Gylfi, sem skrifaði undir við Val á dögunum, sagðist í samtali við 433.is vera ansi svekktur að vera ekki í hópnum.

„Ef Gylfi er að spila í hverri viku er hann klárlega leikmaður sem nýtist landsliðinu. Ég held að það sé engin umræða,“ sagði Alfreð við 433.is eftir æfingu Íslands í Búdapest, þar sem leikurinn gegn Ísrael fer fram, í kvöld.

„Þekkjandi hann þá vill hann alltaf meira. Hann hefur rétt á sínum tilfinningum. Ég leyfi öðrum að dæma um hvort þær séu sanngjarnar eða ekki.“

Alfreð hefur trú á að Gylfi komi sér í landsliðið á ný.

„Það er hans karakter að vilja alltaf meira og fara hundrað prósent í það sem hann gerir. Þess vegna hefur hann átt svona farsælan feril. Vonandi fer hann bara vel af stað með Val og fer svo að nýtast landsliðinu þegar hann er kominn í toppstand.“

Ítarlega var rætt við Alfreð um komandi verkefni í viðtalinu, sem má nálgast í spilaranum.

video
play-sharp-fill
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum
Hide picture