fbpx
Sunnudagur 18.maí 2025
433Sport

Barton svarar fullum hálsi eftir að kona flúði land vegna hans – „Fyrirgefðu elskan en þú ert glötuð“

Helgi Fannar Sigurðsson
Miðvikudaginn 17. janúar 2024 12:00

Joey Barton. GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Joey Barton hefur svarað sparkspekingnum Eni Aluko eftir að hún tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að hún hafi yfirgefið England tímabundið vegna hans.

Barton hefur farið mikinn á samfélagsmiðlum undanfarið og hjólað í konur sem fjalla um karlafótbolta. Flestir eru sammála um að hann hafi gengið allt of langt í þessari „herferð“ sinni en hann sagði á dögunum að Aluko og kollegi hennar Lucy Ward væru „Fred og Rose West fótboltaumfjöllunnar.“ Fred og Rose West voru breskir raðmorðingjar.

Í kjölfar ummæla Barton hafa netverjar herjað á Aluko og aðrar konur í geiranum á samfélagsmiðlum. Segist hún nú óttast um öryggi sitt og er farin erlendis í bili.

„Ég ætla að vera hreinskilin og ég skal glöð viðurkenna að ég hef verið hrædd þessa vikuna,“ sagði Aluko á Instagram í gær og hélt áfram.

„Ég fór ekki úr húsi á föstudag og nú er ég komin erlendis. Netníð hefur bein áhrif á öryggi þitt og hvernig þér líður í hinu raunverulega lífi. Ég vil að fólk átti sig á hvað haturðsorðræða er, hvernig áhrif kynþáttaníð og kynjamismunum hefur.“

Barton hefur nú svarað fullum hálsi.

„Ég beið eftir að þú spilaðir fórnarlambs-kortinu,“ skrifar hann á X (áður Twitter).

„Fyrirgefðu elskan en þú ert glötuð í fótboltaumfjöllun. Þú veist ekkert um karlafótbolta. Það eru allir að hlæja að þér, ekki bara ég.“

Aluko og Ward munu höfða mál gegn Barton samkvæmt enskum miðlum.

Fjöldi fólks úr knattspyrnuheiminum hefur foræmt niðrandi ummæli Barton um konur sem starfa við knattspyrnuumfjöllun undanfarið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Ekki tapað á útivelli tvö tímabil í röð

Ekki tapað á útivelli tvö tímabil í röð
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Vissi nákvæmlega hvert hann myndi skjóta í gær – Hetjan í sögulegum sigri

Vissi nákvæmlega hvert hann myndi skjóta í gær – Hetjan í sögulegum sigri
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Máni spyr hver stefnan sé í Garðabænum – „Menn vita ekkert á hvaða vegferð þeir eru og hafa ekki vitað í lengri tíma“

Máni spyr hver stefnan sé í Garðabænum – „Menn vita ekkert á hvaða vegferð þeir eru og hafa ekki vitað í lengri tíma“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Fengu skilaboð frá þeim besta eftir að titillinn vannst – Sjáðu hvað hann birti

Fengu skilaboð frá þeim besta eftir að titillinn vannst – Sjáðu hvað hann birti
433Sport
Í gær

Salah opnar sig um hvað átti sér stað – ,,Ég er ekki að ráðast á Liverpool en veit hvernig þeir hafa komið fram við leikmenn“

Salah opnar sig um hvað átti sér stað – ,,Ég er ekki að ráðast á Liverpool en veit hvernig þeir hafa komið fram við leikmenn“
433Sport
Í gær

Crystal Palace bikarmeistari eftir sigur á Manchester City

Crystal Palace bikarmeistari eftir sigur á Manchester City