Ágúst Beinteinn Árnason, útvarpsmaður á FM957 og tónlistarmaður með meiru er 22 ára í dag.
Gústi B. eins og hann er best þekktur hélt upp á afmælið um helgina í veislusalnum Cava Club, glæsilegum veislusal í gömlu kartöflugeymslunum við Rafstöðvarveg. Það var troðfullt hús og mikil stemning hjá veislugestum.
Eins og vera ber í afmælum fékk afmælisbarnið góðar gjafir. Þegar tónlistarmaðurinn Prettyboitjokko færði honum gjöfina frá sér vildi ekki betur til en svo að Gústi B. missti gjöfina í gólfið.
Daði Ófeigsson náði atvikinu á myndband sem sjá má hér.
Sem betur fer leyndist ekkert brothætt í kassanum, heldur Louis Vuitton taska að verðmæti 140.000 krónur.