fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
433Sport

Telja að hryðjuverk hafi verið framið í Belgíu í kvöld – Tveir Svíar myrtir og yfirvöld óttast það versta

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 16. október 2023 20:18

Sænskir stuðningsmenn á vellinum í gærkvöldi. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tveir sænskir ríkisborgarar voru myrtir í Brussel, höfuðborg Belgíu, í kvöld. Voru þeir mættir þangað til að fylgja eftir landsliði sínu.

Yfirvöld í Belgíu rannsaka málið sem hryðjuverk og er því búið að blása af landsleik Belgíu og Svíþjóðar, en leikmenn Svíþjóðar sögðu við UEFA að þeir kærðu sig ekki um að spila seinni hálfleikinn og belgísku leikmennirnir tóku undir.

Stuðningsmennirnir voru myrtir rétt hjá leikvanginum þegar stutt var í að leikurinn færi af stað.

Leikurinn var í gangi í höfuðborginni þegar yfirvöld kröfðust þess að leik yrði hætt. Árásarmaðurinn flúði af vettvangi og gengur enn laus. Yfirvöld í Belgíu hafa gefið út að málið sé rannsakað sem hryðjuverk, en myndband hefur verið birt á samfélagsmiðlum þar sem karlmaður segir á arabísku að hann beri ábyrgð á árásinni og hafi gert það í nafni guðs. Hann bætti við að hafa myrt þrjár manneskjur. Yfirvöld hafa séð myndbandið en eru ekki búin að sannreyna það.

Stuðningsmönnum sænska liðsins er ráðlagt að vera áfram á vellinum þar sem yfirvöld óttast að árásarmennirnir vilji jafnvel myrða fleiri úr þeirra hópa.

Forsætisráðherra Belgíu, Alexander De Croo, hefur sent sænska kollega sínum samúðarkveðju.

„Hugur okkar er með fjölskyldum og vinum sem misstu ástvini sína. Sem nánir samstarfsaðilar þá er baráttan við hryðjuverk sameiginleg.“

Franski innanríkisráðherran, Gérard Darmanin, hefur tilkynnt að Frakkland muni auka gæslu á landamærum sínum við Belgíu í forvarnarskyni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Segir að Maignan hafi tekið ákvörðun sjálfur

Segir að Maignan hafi tekið ákvörðun sjálfur
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Blikar töpuðu fyrri leiknum í Albaníu

Blikar töpuðu fyrri leiknum í Albaníu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Spenntur fyrir kvöldinu: Mætir goðsögninni í mikilvægum leik – ,,Sendi mér skilaboð og hvatti okkur áfram“

Spenntur fyrir kvöldinu: Mætir goðsögninni í mikilvægum leik – ,,Sendi mér skilaboð og hvatti okkur áfram“
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Þrjú félög vilja Grealish – City búið að skella verðmiða á hann

Þrjú félög vilja Grealish – City búið að skella verðmiða á hann
433Sport
Í gær

Gagnrýna Reykjavíkurborg harðlega fyrir lítil samskipti – Ætla að reisa skólaþorp á bílastæðinu

Gagnrýna Reykjavíkurborg harðlega fyrir lítil samskipti – Ætla að reisa skólaþorp á bílastæðinu
433Sport
Í gær

Sagði Þorsteinn sjálfum sér upp í beinni útsendingu?

Sagði Þorsteinn sjálfum sér upp í beinni útsendingu?