fbpx
Þriðjudagur 03.mars 2026
Fréttir

Minkurinn eytt meira en helmingi af æðarvarpinu í Brokey

Kristinn H. Guðnason
Laugardaginn 14. október 2023 20:30

Æðarfuglinn hefur ekkert svar við minknum.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Æðarfuglinn hefur betri varnir gegn refnum en minknum. Minkurinn hefur drepið um 60 prósent af æðarvarpinu í Brokey á Breiðafirði. Í nálægri Purkey hafði refurinn engin teljandi áhrif á stofninn.

Þetta kemur fram í nýrri rannsókn vísindamanna við Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Snæfellsnesi og stofnunarinnar IGB í Berlín í Þýskalandi.

Vísindamennirnir notuðu gögn frá þeim fjölskyldum sem hafa tínt æðardún og þekkja svæðið betur en nokkrir aðrir. Gögnin ná 123 ár aftur í tímann.

Um þriðjungur af öllum æðarfuglum álfunnar verpir á Íslandi. Á hverju ári er um þremur tonnum af æðardún safnað til að framleiða hágæða sængurfatnað og einangrun í föt. Eru þetta miklar nytjar og því var tilkoma minksins skaðræði.

Ársæll flutti minkinn inn

Gunnar á Selalæk þingmaður flutti minkinn inn frá Noregi árið 1931, en tegundin er samt amerísk marðartegund. Strax árið 1932 sluppu fyrstu minkarnir úr búrum á Suðurlandi og fimm árum seinna fannst greni í Reykjavík. Ljóst var að minkurinn var orðinn útbreiddur í íslenskri náttúru, gat vel lifað hér af og erfitt yrði að útrýma honum jafn vel þó skyttum sé greitt fyrir hvert skott.

Smám saman breiddist minkurinn út um landið og þar sem hann getur vel synt hefur hann lagst bæði á fugla og fiska, og drepur mun meira en hann þarf til að éta.

Í rannsókninni kemur fram að tilkoma minksins í Breiðafjörð hafði meiri áhrif á æðavörpin en loftslagsbreytingar. Fækkaði hreiðrum um 60 prósent í Brokey.

Hafa þróað varnir gegn refnum

Refurinn hefur lifað á Íslandi síðan á ísöld og líkt og minkurinn er hann vargur. Hann er hins vegar ekki syndur og því eiga æðarfuglarnir auðveldara með því að bregðast við honum.

Í rannsókninni kemur fram að fuglar í Purkey fluttu varp sitt út í smærri eyjar, sem refurinn gat ekki synt út í. Æðarfuglinn hefur hins vegar engar varnir gegn minknum.

„Eina innlenda rándýrið sem er spendýr er heimskautarefurinn. Æðarfuglarnir hafa þróað með sér varnir gegn þessum óvin. En þær virka ekki gegn hinum nýja óvini, hinum ágenga ameríska mink,“ segir Florian Ruland, vísindamaður hjá IGB.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga

Eigendur þriggja húsa lögðu borgina sem fór ekki eftir ákvæðum laga
Fréttir
Fyrir 18 klukkutímum

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“

Guðrún: „Þung og sorgleg tíðindi“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“

Heimsfrægur trúður handtekinn á Keflavíkurflugvelli – „Þeir sögðu mér að taka farangurinn minn og fylgja þeim“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa

Könnun Maskínu – Samfylkingin stærst í borginni – Vinstrið fær 2 fulltrúa