fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Biðja Guðjón Pétur afsökunar á að hafa sakað hann um rasisma – „Skaðinn er því miður skeður eftir að þessi fyrirsögn fór í loftið“

Hörður Snævar Jónsson
Fimmtudaginn 20. júlí 2023 12:30

Guðjón Pétur Lýðsson Mynd/Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísir.is hefur beðið Guðjón Pétur Lýðsson miðjumann Grindavíkur afsökunar á því að hafa ýjað að því að hann hefði verið með kynþáttafordóma eftir leik Gróttu og Grindavíkur á sunnudag.

Allt sauð upp úr að leik loknum og var Guðjón í þeim áflogum en hann hafnaði því frá byrjun að hafa verið rasisma við leikmann Gróttu.

„Í upprunalegri frétt Vísis um málið var sagt að orðrómur hefði verið um að Guðjón Pétur væri sá seki þar. Það var dregið til baka í uppfærðri frétt daginn eftir og Vísir hefur nú sannreynt að Guðjón kom þar hvergi nærri. Íþróttadeild biður Guðjón Pétur afsökunar á því að hafa dregið nafn hans í þann anga málsins á því stigi,“ segir í frétt sem Vísir hefur nú birt.

Guðjón fagnar því í færslu á Facebook að Vísir hafi viðurkennt mistök sín. „Þá er það komið á hreint , enda eitthvað sem ég myndi aldrei í lífinu gera. Það er vonandi að þetta verði til þess að fjölmiðlar vandi sig með birtingu á fréttum og að birta ekki fréttir sem engin fótur er fyrir. Ég fyrirgef Vísi eftir að þeir tóku ábyrgð á þessum mistökum það er engin fullkominn og þessi blaðamaður sem skrifaði þessa frétt lærði vonandi að svona skrifar ruslmiðill en ekki fréttamiðill sem vill láta taka mark á sér,“ skrifar Guðjón

„Skaðinn er því miður skeður eftir að þessi fyrirsögn fór í loftið og það munu líklega ekki allir sem lásu upprunalegu fréttina sjá þessa afsökunarbeiðni en vonandi fer þessi afsökunarbeiðni sem lengst til að leiðrétta þessa vitleysu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna