fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
433Sport

Kristján Óli gerir ráð fyrir meiri spennu – „Verður algjör veisla“

433
Mánudaginn 10. apríl 2023 10:14

Kristján Óli Sigurðsson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Besta deild karla hefst í dag með heilli umferð og er eftirvæntingin mikil.

Leitað var til stuðningsmanna liðanna í deildinni og lagður fyrir þá spurningalisti.

Sparkspekingurinn Kristján Óli Sigurðsson svaraði fyrir hönd sinna manna í Breiðabliki. Liðið freistar þess að verja Íslandsmeistaratitil sinn.

Hvernig líst þér á sumarið hjá þínu liði?
Mér líst vel á sumarið og hlakka mikið til að sjá boltann rúlla af stað. Krafan í Kópavoginum er að verja skjöldinn góða og vonandi gengur það betur en 2011.

Hvernig finnst þér hafa gengið að styrkja leikmannahópinn?
Það hefur gengið ágætlega þó svo að erfitt verði að fylla alveg í skarðið sem Dagur Dan og Ísak skilja eftir sig en þá bind ég miklar vonir við Patrik, Stefán Inga, Eyþór og Alex Frey. Eins kemur Arnór Sveinn með gríðarlega reynslu í hópinn og risastórt grænt hjarta.

Hver er uppáhalds leikmaðurinn þinn í liðinu?
Erfitt að gera upp á milli Gísla, Höskuldar og Jasons Daða. En þegar Jason er á deginum sínum er hann besti leikmaður deildarinnar svo hann fær mitt atkvæði. En til að halda friðinn á heimilinu verð ég líka að nefna stjúpson minn Dag Örn Fjeldsted sem fær vonandi tækifæri með besta liði landsins í sumar.

Ertu dugleg/ur að mæta á völlinn hjá þínu liði?
Já ég reyni að mæta á alla leiki sem ég get þó kemur fyrir að golfvöllurinn hafi vinninginn.

Fyrir utan heimavöllinn hjá þínu félagi, hvar er skemmtilegast að fara á völlinn?
Kaplakriki er á toppnum þarna í dag. KR völlurinn var það en það eins og að fara í tímavél í dag að mæta í Vesturbæinn á leiki.

Hvað finnst þér um fyrirkomulagið í Bestu deildinni sem var prófað í fyrsta sinn á síðustu leiktíð?
Mér líst vel á það og fín leið til að fjölga leikjum. Baráttan um titilinn varð aldrei nógu mikil í fyrra til þess að fá fulla velli í síðustu umferðunum en ég gæti trúað að það verði þannig í ár og þá verður þetta algjör veisla.

Hvaða lið verður Íslandsmeistari?
Íslandsmeistararnir verja titilinn með kjafti og klóm. Breiðablik.

Breiðablik er ríkjandi Íslandsmeistari Mynd/Helgi Viðar
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Verður líklegast áfram á Englandi

Verður líklegast áfram á Englandi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Börsungar til í að losa átta – Voru áður í lykilhlutverki

Börsungar til í að losa átta – Voru áður í lykilhlutverki
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ten Hag efstur á blaði fyrir stóra starfið sem er að losna

Ten Hag efstur á blaði fyrir stóra starfið sem er að losna
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hótelverð hækkaði um 900 prósent á einni nóttu og barir ætla að hækka verðið hressilega

Hótelverð hækkaði um 900 prósent á einni nóttu og barir ætla að hækka verðið hressilega
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Einn sá launahæsti í heimi fær samningi sínum í Sádí rift

Einn sá launahæsti í heimi fær samningi sínum í Sádí rift
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Sjáðu myndböndin – Leikmenn Liverpool á snekkju að kveðja Trent í Dubai

Sjáðu myndböndin – Leikmenn Liverpool á snekkju að kveðja Trent í Dubai