

Jacqueline Durand byggir nú upp líf sitt og andlit eftir hryllilega árás tveggja hunda árið 2021. Durand var bitin meira en 800 bitum, en hún deilir sögu sinni og myndum eftir árásins og fjölmargar skurðaðgerðir. Segist hún gera það til að hvetja aðra og vekja athygli á hættum hunda.
Durand hefur deilt sögu sinni á samfélagsmiðlum. „Það er löng leið að ná fullum bata en mér gengur vel, þetta er ferli.“
View this post on Instagram

Durand, sem var nemandi í Texas í Bandaríkjunum mætti degi fyrir 22 ára afmælisdaginn sinn í desember árið 2021 á heimili hjóna sem hún passaði hunda fyrir. Um leið og hún opnaði dyrnar inn á heimilið stukku hundarnir tveir á hana, drógu hana í gegnum anddyrið og inn í stofu. Í árásinni sem stóð yfir í hálftíma bitu þeir hana yfir 800 sinnum og rifu af henni nefið, eyrun, varir og kinnar niður að beini. Andlit Durand var afmyndað eftir árásina en hún hefur gengist undir 18 skurðaðgerðir til að endurbyggja andlit sitt.

„Ég bað ekki um þetta, ég held það sé kominn tími til að sýna hver ég er núna og ég get ekki verið hrædd við að sýna mig. Ég vil að hundaeigendur þekki dýrin sín og geti sagt þeim sem eiga að passa dýrin hvernig hundarnir eru.“
„Þegar ég fann húðina hanga niður af andlitinu á mér hélt að ég væri að fara að deyja.“
Hryllileg árás tveggja hunda
Tveir björgunarhundar réðust á Durand, Bender blanda af boxer og pit bull og Lucy þýskur fjárhundur, en Durand hafði hitt hundana einu sinni fyrir árásina. Þrátt fyrir að virka yndislegir þegar hún hitti þá breyttist skapgerð þeirra um leið og Durand steig inn um dyrnar daginn örlagaríka, en hundarnir höfðu gengið lausir um húsið.
„Þegar ég fann húðina hanga niður af andlitinu á mér hélt að ég væri að fara að deyja,“ segir Durand þegar hún rifjar upp árásina. Lögreglan kom á staðinn, þar sem viðvörunarbjalla fór í gang þegar útidyrahurðin var skilin eftir opin. Þeir gátu þó ekki hafið björgunaraðgerðir fyrr en 37 mínútum síðar þar sem hundarnir voru taldir hættulegir og því ekki óhætt að fara inn í húsið.
@jacquelinedurand7 Some days are easier than others 🤷🏼♀️ but I’m keeping my head up through the hard times 💜 #survivor #dogattacksurvivor #dogattackawareness ♬ original sound – Tik Toker
Hefur gengist undir 18 aðgerðir
Durand var flutt á sjúkrahús, hún hafði misst 30 prósent af blóði sínu og gekkst undir sjö tíma bráðaaðgerð. Margoft þurfti að endurlífga hana á skurðarborðinu og var hún lögð í læknisdá í viku. Eftir 60 daga á sjúkrahúsi var hún útskrifuð. Durand hefur gengist undir 18 skurðaðgerðir til að endurbyggja andlit sitt og í þeirri fyrstu græddu læknar húð af rasskinnum hennar og enni til að hefja endurbyggingarferlið. Í öðrum skurðaðgerðum var nef hennar endurbyggt með því að nota húð nálægt hárlínunni á enninu og efri vör var búin til með húð frá vinstra læri.
Durand er með kærasta, en hann hafði nýlega náð sér af krabbameini þegar árasin átti sér stað. „Með þessari reynslu höfum við vaxið nánar saman og hann hefur verið til staðar fyrir mig frá fyrsta degi og ég er mjög þakklát. Það sem sum ykkar vita kannski ekki er að hann fékk krabbameinsgreiningu og meðferð á síðustu tveimur árum, guði sé lof að hann er krabbameinslaus og allt er gott hjá honum. Ég var til staðar fyrir hann og núna þegar hlutverkin hafa snúist við er hann til staðar fyrir mig. Það er í raun fallegt að sjá hversu sönn ást okkar er.“

Þrátt fyrir þessa skelfilegu reynslu elskar Durand enn hunda og dreymir um að vinna með þeim aftur í framtíðinni. „Ég er að hugsa um hundaþjálfun. Það er draumur minn en ég er ekki viss um hvert lífið mun leiða mig.“