

Í nýrri stiklu fyrir myndina ræðir fyrrverandi NBA-stjarnan um hjónaband hans og raunveruleikastjörnunnar Khloé Kardashian og fíkniefnaneysluna á meðan því stóð. Lamar og Khloé voru gift frá 2009 til 2016.
„Fíkniefni voru kærastan mín. Ég átti eiginkonu… og kókaín,“ segir hann við sjónvarpsmanninn Harvey Levin.
Aðspurður hvort Khloé hafi vitað að hann væri að neyta fíkniefna á meðan þau voru gift sagði Lamar: „Ég þurfti að segja henni frá því á ákveðnum tímapunkti. Maður getur ekki falið svona að eilífu.“

Khloé og Lamar giftust árið 2009. Það var sýnt frá brúðkaupinu í Keeping Up With The Kardashians og var hann reglulegur gestur í þáttunum á þeim tíma.
Khloé sótti fyrst um skilnað árið 2013 eftir að það komst upp um framhjáhald hans og fíkniefnaneyslu. Lamar neitaði að skrifa undir skilnaðarpappíra og að sætta sig við stöðu málanna. Í október árið 2015 fannst körfuboltakappinn meðvitundarlaus á vændishúsi eftir að hafa tekið of stóran skammt. Khloé hætti þá við skilnaðinn og tók að sér að hugsa um hann og fjármál hans á meðan hann jafnaði sig. Lamar byrjaði að vera aftur reglulegur gestur í raunveruleikaþáttum fjölskyldunnar.
Lamar byrjaði svo í neyslu á ný og sótti Khloé aftur um skilnað, sem loksins gekk í gegn í desember 2016.
View this post on Instagram
Í stiklunni viðurkennir Lamar að hann hafi komið hræðilega fram við Khloé á meðan hún hélt utan um hann á hans myrkustu tímum.
„Ég meina, ég lét hana ganga í gegnum alls konar rugl á bak við tjöldin. Það sem þið haldið að þið vitið er klikkað, en það sem þið vitið ekki er virkilega klikkað.“
Myndin verður frumsýnd 2. janúar næstkomandi á Fox og daginn eftir verður hægt að streyma henni á Hulu.