
Scott McTominay, miðjumaður Manchester United, hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir að heimsækja dýragarð í Dúbaí á dögunum.
Hinn 26 ára gamli McTominay hefur verið í fríi í Dúbaí ásamt kærustu sinni meðan hlé var á enska boltanum vegna Heimsmeistaramótsins í Katar.
Þau skelltu sér í dýragarð sem býður upp á að komast í nánd við dýr á borð við snáka, birni og tígrisdýr. Fór McTominay í reiptog við eitt slíkt. Það er það athæfi sem hann hefur verið gagnrýndur hvað mest fyrir.
Katheryn Wise hjá Alþjóðadýraverndunarsamtökunum var á meðal þeirra sem gagnrýndi kappann. „Þetta veldur manni vonbrigðum. Þessi ótrúlegu dýr eru ekki gerð til að búa til læk á samfélagsmiðlum.“
„Þessi dýr þurfa að þola ævi af þjáningu bara til að túristar geti notið þeirra. Vilt dýr eru ekki fyrir okkur. Þau eiga að vera úti í náttúrunni,“
Fleiri frá dýraverndunarsamtökum tóku í sama streng og Wise.
Margir aðdáendur lýstu þá yfir vonbrigðum sínum.
„Scott ég elska þig en þetta er rangt,“ skrifaði einn og annar skrifaði: „Með því að taka sjálfur með dýrum sem voru tekin föngum ertu að ýta undir þjáningu þeirra.“
Dýragarðurinn sem um ræðir í Dúbaí er sérstaklega miðaður að frægu fólki og íþróttastjörnum. Menn á borð við Lionel Messi og Anthony Joshua hafa látið sjá sig þar.