fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Sjáðu myndbandið: Beraði brjóst sín í stúkunni í Katar – Gæti endað í fangelsi

433
Mánudaginn 19. desember 2022 08:12

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var gleði í Katar í gær þegar Argentína varð Heimsmeistari eftir sigur á Frakklandi í vítaspyrnukeppni.

Ein kona í stúkunni missti sig í gleðinni í stúkunni og beraði brjóst sín. Beint útsending var í gangi og myndavélin á henni.

Strangar reglur eru um svona í Katar og segja ensk blöð að konan gæti endað í fangelsi.

Einn skemmtilegasti úrslitaleikur HM sögunnar fór fram í gær er Argentína og Frakkland áttust við í Katar.

Argentína byrjaði þennan leik virkilega vel og var með 2-0 forystu þegar flautað var fyrri hálfleikinn af. Lionel Messi skoraði fyrra markið á 23. mínútu úr vítaspyrnu og bætti Angel Di Maria við öðru á 36. mínútu.

Útlitið var lengi mjög bjart fyrir Argentínu en þegar 10 mínútur voru eftir fékk Frakkland vítaspyrnu. Kylian Mbappe steig á punktinn og lagaði stöðuna fyrir Frakka og var svo aftur á ferðinni mínútu síðar.

Mbappe tókst að jafna metin strax eftir fyrra mark sitt og tryggði Frökkum þar með framlengingu. Í framlengingunni voru það Argentínumenn sem tóku forystuna er Messi gerði sitt annað mark á 109. mínútu.

Mbappe reyndist svo aftur hetja Frakka er tvær mínútur voru eftir en hann jafnaði þá metin á ný með öðru marki af vítapunktinum. Í vítaspyrnukeppninni voru það Argentínumenn sem höfðu betur en þeir Kingsley Coman og Aurelien Tchouameni klikkuðu á punktinum fyrir þá frönsku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum