fbpx
Miðvikudagur 01.maí 2024
Fréttir

Safnað fyrir hinum fimmtán ára Sigurgeiri sem er illa slasaður eftir bruna

Ritstjórn DV
Mánudaginn 28. nóvember 2022 18:22

Foreldrar Sigurgeirs, þau Ísak og Noi reka verslunina Ásbyrgi en sjá ekki fram á að geta sinnt rekstrinum meðfram endurhæfingu Sigurgeirs stendur í Svíþjóð

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrundið hefur verið af stað söfnun fyrir hinn 15 ára gamla Sigurgeir Sankla Ísaksson sem brenndist illa í síðustu viku. Brunasár Sigurgeirs eru alvarleg og dvelur hann nú á sérhæfðri brunadeild á háskólasjúkrahúsinu í Uppsölum í Svíþjóð.

Sigurgeir er búsettur ásamt foreldrum sínum, Ísaki Sigurgeirssyni og Noi Senee Sankla í Kelduhverfi á Kópaskeri en þar starfrækja þau verslunina Ásbyrgi við samnefnda náttúruperlu. Sá sem vakti athygli á söfnuninni er Jón Ármann Gíslason, sóknarprestur og prófastur á Skinnastað í Öxarfirði. Óljóst er hvernig slysið bar að en eina sem víst er að framundan er erfið barátta hjá Sigurgeiri. Brunasárin þekja stóran hluta líkama hans en þau eru bæði annars og þriðja stigs.

Rándýr endurhæfing er framundan auk þess sem foreldrar hans dvelja hjá honum ytra og þá verður lítið um verslunarrekstur á meðan.

„Þess vegna vil ég að höfðu samráði við vini og velunnara fjölskyldunnar minna á styrktarreikning prestakallsins. Hann er á kennitölu Skinnastaðarkirkju. Hvet ég þau sem eru aflögufær að láta eitthvert smáræði af hendi rakna, fjölskyldunni til hjálpar á þessum erfiðum tímum í lífi hennar. Allt sem verður lagt inn á reikninginn næstu vikurnar mun renna óskert til þeirra Ísaks og Noi. Munum að margt smátt gerir eitt stórt,“ skrifar Jón Ármann í færslu sem dreift hefur verið víða á samfélagsmiðlum.

Þeir sem eru aflögufærir til Sigurgeirs og fjölskyldu hans geta lagt inná neðangreint reikning

Kennitala: 590269-6119

Banki: 0192-26-30411

Færsla Jóns Ármanns

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“

Inga Sæland ekki sátt: „Efri árin eiga að vera gæðaár en ekki tími kvíða og óörygg­is“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“

Sigríður Dögg segir að RÚV þurfi að gera betur: „Lítilsvirðing gagnvart konum á ekki að líðast“
Fréttir
Í gær

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun

Jón Steinar studdi Arnar Þór en er búinn að skipta um skoðun
Fréttir
Í gær

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda

Að öllu óbreyttu verður þetta endanlegur fjöldi forsetaframbjóðenda