fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Manchester United í kapphlaupið við erkifjendurna um einn þann efnilegasta í heimi – Með þýskalandi á HM sautján ára gamall

Helgi Fannar Sigurðsson
Fimmtudaginn 10. nóvember 2022 14:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Manchester United hefur blandað sér í kapphlaupið um hinn efnilega Yousouffa Moukoko. Bild segir frá.

Moukoko er aðeins sautján ára gamall en þykir gríðarlegt efni. Hann er á mála hjá þýska stórliðinu Borussia Dortmund.

Þrátt fyrir ungan aldur er hann farinn að spila reglulega með aðalliði Dortmund.

Moukoko hefur til að mynda verið orðaður við Liverpool og Manchester City.

Moukoko, sem spilar fyrir U-21 árs landslið Þýskalands, gekk í raðir Dortmund aðeins tólf ára og kom inn í akademíu félagsins. Hann var kallaður upp í aðalliðið áður en hann varð sextán ára gamall.

Samningur sóknarmannsins rennur hins vegar út næsta sumar. Dortmund þarf að flýta sér að semja við hann næsta sumar, ætli félagið sér ekki að missa hann frítt til einhverra af ofangreindum félögum.

Moukoko er hluti af HM-hópi Þýskalands. Mótið hefst eftir tíu daga. Hann gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik á mótinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum