Bandarísku hjónin Jess og Stephen DeMarco hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum undanfarið eftir að þau greindu frá því að þau væru í fjölkæru sambandi, deildu kærustu og ættu von á barni. Þau framleiða einnig klám fyrir OnlyFans.
Jess og Stephen hafa verið gift í 14 ár og eru fjölkær. Þau eru frá Tampa, Flórída, og eru með milljónir fylgjenda sem hafa áhuga á óhefðbundna sambandi þeirra.
Jess er ólétt og velta margir fylgjenda þeirra fyrir sér hvernig barnið muni passa inn í lífsstíl þeirra og hvað kærustu þeirra muni finnast um nýju viðbótina.
I’m pregnant and polyamorous pic.twitter.com/XOisR85KEk
— cliquebaittv (@cliquebaittv) October 19, 2022
„Fólk heldur að sambandið okkar eigi ekki eftir að virka því við erum að eignast barn,“ sagði Jess í samtali við The Sun.
„Við fáum mikið af skilaboðum þar sem fólk spyr hvort við ætlum að „hætta að hegða ykkur svona fáránlega, þar sem það er barn á leiðinni?“
Jess og Stephen reyndu í fimm ár að eignast barn og gekk hún í gegnum nokkra erfiða fósturmissi. Vegna þessa sagði Jess að þau væru ákveðnari en áður að halda fjölkæra lífsstílnum áfram.
„Núna þegar við eigum von á barni langar mig að sýna að „það taki heilt þorp,““ sagði hún.
„Ég held að við séum byrjuð að kenna fólki, bæði konum og körlum, að þetta snýst ekki um kynlíf.“
Stephen sagði að þau væru einnig tilbúin að taka gagnrýnina og hitann á sig fyrir annað fjölkært fólk. „Ef fólk vill drulla yfir okkur og taka þetta út á okkur, þá er það í lagi okkar vegna,“ sagði hann.
„Maður þarf alltaf að hafa áhyggjur af því hvort aðrir muni dæma börnin manns, en vonandi erum við að hvetja fólk til að vera umburðarlyndara og opnara fyrir öðrum.“
Jess og Stephen eiga kærustu sem þau eru bæði með. „Ég er með honum, hann er með henni, ég er með henni. Við erum öll spennt að dekra barnið saman,“ sagði Jess.