fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Fréttir

Þetta gæti verið framtíðaráætlun Pútíns

Kristján Kristjánsson
Þriðjudaginn 1. nóvember 2022 06:54

Fjöldi lífvarða fylgir Pútín hvert skref. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mun Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, halda stríðsrekstrinum í Úkraínu áfram á sama hátt og nú er eða mun hann reyna að stigmagna átökin í von um að stríðinu ljúki fyrr?

Ef svara við þessu er leitað hjá bandarísku hugveitunni Institute for the Study of War (ISW) er annar möguleikinn líklegri en hinn.

„Forseti Rússland, Vladímír Pútín, mun langlíklegast reyna að halda hefðbundnum hernaðaraðgerðum áfram í Úkraínu til að halda herteknu svæðunum, ná nýjum landsvæðum á sitt vald og vinna að því að skapa aðstæður fyrir hruni stuðnings vestrænna ríkja við Úkraínu en hann reiknar líklega með að það gerist í vetur,“ segir í greiningu hugveitunnar.

Einnig segir að Pútín hafi líklega ekki gefið upp vonina um að ná öllum þeim markmiðum, sem hann setti sér með innrásinni í Úkraínu, með hefðbundnum hernaðaraðgerðum. Samtímis reyni hann að brjóta niður baráttuvilja Úkraínumanna og vilja Vesturlanda til að styðja Úkraínu.

ISW segir að ólíklegt sé að Pútín muni grípa til þess ráðs að beita vígvallarkjarnorkuvopnum en þó geti komið til þess ef rússneski herinn hrynur algjörlega, sem myndi gefa úkraínska hernum tækifæri til að sækja fram af krafti.

Hugveitan segir „hugsanlegt“ en „ósennilegt“ að Pútín muni grípa til þess að beita kjarnorkuvopnum. Mjög ólíklegt sé að hann muni reyna að efna til beinna hernaðarátaka við NATO. Hann muni þó mjög líklega halda áfram að ýja að möguleikanum á að Rússar beiti kjarnorkuvopnum og árás á NATO. Þetta sé hluti af tilraunum hans til að brjóta niður vilja Vesturlanda til að styðja Úkraínu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“

Oddný táraðist er hún rifjaði upp erfiðleika í æsku – „Ég ætla nú ekki að fara gráta í viðtalinu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni

Sagan endalausa? Margrét ósátt við dómara sem hefur gefið út dagsetningu á endurflutningi á sakamáli gegn henni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl

Fastus afhenti Brunavörnum Rangársýslu nýjan dælubíl
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“

Steinunn og Jacques urðu ástfangin við fyrstu kynni en leiðir skildu í 40 ár – „Höfum við ákveðið að týna ekki ástinni aftur, aldrei aftur“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“

Gunnar Smári kemur RÚV til varnar – „Skammarlegt að lesa einhverjar vandlætingargreinar um blaðamennsku Þóru“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump

Björn afþakkaði boð Melaniu Trump