fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Kynning

Goðsögnin Ford Bronco snýr aftur

Kynning
Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 19. október 2022 10:13

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

  • Goðsögnin glæsilega snýr aftur
  • Sjö G.O.A.T akstursstillingar
  • Öflugt HOSS fjöðrunarkerfi
  • Rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi
  • 330-418 hestöfl, 10 gíra sjálfskipting

Aðeins 30 eintök í boði til að byrja með

Brimborg náði einstökum samningum við Ford í Bandaríkjunum og því koma 30 eintök af Ford Bronco til landsins í lok nóvember næstkomandi, langt á undan öðrum mörkuðum í Evrópu, og það gæti verið talsvert langt í næstu sendingu.

Goðsögnin snýr aftur!

Ford Bronco er Íslendingum mjög vel kunnugur enda var hann óhemjuvinsæll fyrir nokkrum áratugum og hans helstu aðdáendur hafa engu gleymt. Hönnuðir nýja Ford Bronco sóttu innblástur í gamla útlitið frá árinu 1966 og héldu í hrátt yfirbragð og ævintýraandann sem vissulega liggur yfir jeppanum.

Sex til sjö G.O.A.T akstursstillingar

Þessi skemmtilega skammstöfun, G.O.A.T, stendur á ensku fyrir „Goes Over All Terrain“, sem þýða mætti á íslensku sem „Kemst yfir hvers kyns torfærur“. Ford Bronco bílarnir eru almennt búnir mörgum mismunandi G.O.A.T akstursstillingum og útfærslurnar sem eru í boði núna, Wildtrak og Raptor, eru með sex til sjö stillingar sem nánar er hægt að lesa um á vef Ford á Íslandi.

Öflugt H.O.S.S. fjöðrunarkerfi

H.O.S.S skammtstöfunin stendur á ensku fyrir „High-speed Off-road Suspension System“, sem þýða mætti á íslensku sem „Fjöðrunarkerfi fyrir hraðakstur í erfiðum aðstæðum“. Líkt og með G.O.A.T akstursstillingarnar er mismunandi útgáfa af fjöðrunarkerfinu í hverri útfærslu af bílnum og lesa má nánar um fjöðrunina í Ford Bronco Wildtrak og Ford Bronco Raptor á vef Ford á Íslandi.

Rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi

Það skiptir auðvitað miklu máli að hafa sem besta stjórn á bílnum í torfærum og erfiðum aðstæðum og þar koma rafdrifnar læsingar á fram- og afturdrifi í Ford Bronco sterkar inn. Þær gera það að verkum að bæði hjólin á sama öxli snúast á sama hraða og dreifa aflinu jafnt til að gera aksturinn auðveldari.

330-418 hestöfl, 10 gíra sjálfskipting

Það vantar auðvitað ekki afl í Ford Bronco! Ford Bronco Wildtrak er 330 hestöfl og Ford Bronco Raptor er 418 hestöfl enda bílarnir færir í flestan sjó með tog upp á 557-597 Nm. Hér er svo algjörlega vert að nefna eiginleika eins og sérstaka beygjuaðstoð og hraðastilli fyrir krefjandi akstur (Trail Turn Assist og Trail Control). En rúsínan í pylsuendanum er án efa svokallaður eins fetils akstur (1 Pedal Drive) sem gerir ökumanni kleift að keyra auðveldlega löturhægt og stöðva bílinn án þess að stíga á bremsuna.

2022 Ford Bronco Raptor Wildtrak

Hægt er að velja á milli tveggja útfærslna af Ford Bronco

Til að byrja með kemur Ford Bronco til Íslands í tveimur búnaðarútfærslum, Wildtrak og Raptor:

Ford Bronco Wildtrak er auðvitað hannaður til að standa sig sem allra best á ójöfnum og krefjandi fjallavegum eða við misgóð akstursskilyrði en það kemur á óvart hversu þægilegur hann er einnig innanbæjar.

Það má eiginlega fullyrða að Ford Bronco Raptor muni vekja töluverðan áhuga og aðdáun á götum landsins, því hönnun bílsins er alveg einstök og útlitið bæði kröftugt og glæsilegt. Ford Bronco Raptor er hálfgerður stóri bróðir Wildtrak því hann er stærri og breiðari, og með sérstakar aksturstillingar eins og rock crawl, Tow-Haul og Off-Road mode umfram Wildtrak.

Hér má lesa meira um Ford Bronco

Hér má sjá laus eintök í Vefsýningarsal Brimborgar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum