fbpx
Fimmtudagur 18.september 2025
Fókus

Mál Katrínar var fellt niður þrátt fyrir játningu mannsins – „Ég bauð bara vini mínum að gista, gaur sem ég treysti“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 13. ágúst 2022 15:49

Katrín Von Gunnarsdóttir. Innfellt er skjáskot af játningu gerandans.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Von taldi sig hafa traust mál í höndunum sem líklegt væri til sakfellingar. Að hún hefði orðið fyrir svívirðilegu ofbeldi af hendi manns sem hún taldi vera besta vin sinn. Maðurinn hafði játað brotið með textaskilaboðum þar sem segir meðal annars:

„Ég nauðgaði þér Katrín, það er engin önnur leið. Þú varst sofandi og ég stakk honum inn. Ég var bara í einhverju öðru mindsetti en ég á að vera og braut á þér. Mér líður ógeðslega yfir þessu…“

DV fjallaði um mál Katrínar Vonar í fyrra. Þrátt fyrir játninguna lét lögreglan á Akureyri rannsókn málsins falla niður. Katrín kærði málið til héraðssaksóknara sem lét málið einnig falla niður á þeim forsendum að orð stæði gegn orði, þrátt fyrir að fyrir liggi ofannefnd játning.

Sjá einnig: Katrín kærði nauðgun til lögreglu – Málið fellt niður þrátt fyrir tvær játningar

Fjallað er ítarlega um þetta  mál í nýjasta hlaðvarpi Öfga þar sem birt er viðtal við Katrínu. Þar kemur meðal annars fram að gerandinn játaði einnig glæpinn við sameiginlega vinkonu hans og Katrínar. Ennfremur liggur fyrir að Katrín talaði við marga vini sína strax eftir atburðinn. Gaf þetta fólk skýrslur hjá lögreglu sem samræmdust framburði Katrínar.

Hinn meinti gerandi tók játningu sína til baka í skýrslutöku lögreglu og sagðist hafa skrifað þessa játningu til Katrínar til að róa hana niður. Fram kemur að það mun hafa unnið gegn Katrínu hvernig hún svaraði spurningu lögreglu um hve hrædd hún hefðið orðið á meðan meintu broti stóð. Gat hún ekki sagt að hún hefði verið ofsahrædd.

Katrín er líka mjög ósátt við þær forsendur héraðssaksóknara að í málinu standi orð gegn orði. Hún bendir á að fyrir liggi tvær játningar auk trúverðugs vitnisburðar fólks sem hún hafði samband við eftir atvikið. Hún segir að ekkert hafi verið til fyrirmyndar við vinnslu þessa máls og ekkert upplýsingaflæði hafi verið til hennar. Hafi hún alltaf þurft að hafa frumkvæði að því að fá upplýsingar um gang málsins.

„Ég bauð bara vini mínum að gista, gaur sem ég treysti.“ Katrín bendir á að hún hafi bara boðið vini sínum að gista, manni sem hún treysti, manni sem hafi tekið fram að hann ætlaði ekki að reyna að sofa hjá henni og hún hafi líka gert honum ljóst að hún hefði engan áhuga á slíku. Lögreglu hafi verið fyllilega ljóst af vitnisburði að ekkert slíkt var í gangi.

Við mælum með fróðlegu viðtali Öfga um þetta mál í hlaðvarpinu hér fyrir neðan:

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform

Sunneva reyndi að taka sætar myndir en hundurinn hafði önnur áform
Fókus
Í gær

Brjálaður yfir hegðun stúlkna á hvítri Teslu – „Skammist ykkar!“

Brjálaður yfir hegðun stúlkna á hvítri Teslu – „Skammist ykkar!“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn

Gugga Lísa sleppir takinu á sorginni og kveður móður sína í hinsta sinn
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig

Sjaldséð sjón: Mary-Kate og Ashley létu sjá sig
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Mig langar að skora á Kastljósið að bjóða mér og Ölmu Möller að ræða málin“

„Mig langar að skora á Kastljósið að bjóða mér og Ölmu Möller að ræða málin“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Manst þú eftir drengnum í Tortímandanum? Svona lítur hann út í dag

Manst þú eftir drengnum í Tortímandanum? Svona lítur hann út í dag
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vinsælir þættir snúa aftur – Síðasti þáttur var sýndur árið 2019

Vinsælir þættir snúa aftur – Síðasti þáttur var sýndur árið 2019
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Nú bíð ég spennt eftir jólabókaflóðinu“

„Nú bíð ég spennt eftir jólabókaflóðinu“