fbpx
Mánudagur 10.nóvember 2025
433Sport

Þrátt fyrir ummæli dagsins vilji Ten Hag Ronaldo burt frá Manchester – ,,Getur ekki beðið eftir því að henda Ronaldo út“

Aron Guðmundsson
Mánudaginn 11. júlí 2022 14:00

Samsett mynd / GettyImages

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Simon Jordan, einn af sérfræðingum talkSPORT segist sjá í gegnum það sem hann kallar leikþátt hjá Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United í morgun þegar að hann sagði Cristiano Ronaldo, leikmann Manchester United ekki til sölu.

Ronaldo er sagður óánægður hjá Man Utd og vilja burt. Portúgalinn vill spila í Meistaradeild Evrópu og hefur til að mynda verið orðaður við Chelsea, Bayern Munchen og Napoli en Ten Hag segir hann vera í áætlunum sínum.

Ten Hag þvertekur fyrir orðrómana – „Hvernig gerum við Cristiano glaðan?“

,,Cristiano Ronaldo er ekki til sölu. Hann er í okkar áætlunum. Hann er ekki með okkur núna af persónulegum ástæðum. Við skipuleggjum næsta tímabil með hann í huga, það er staðan,“ sagði Ten Hag á blaðamannafundi og bætti við að hann hlakkaði til að vinna með Ronaldo sem er ekki með United í æfingarferð sem teygir sig til Tælands og Ástralíu.

Á talkSPORT í morgun sagðist Simon Jordan telja að Ten Hag vilji Ronaldo burt.

,,Ég get ímyndað mér að Ten Hag geti ekki beðið eftir því að henda Ronaldo út. Hann spilar þetta bara svona til þess að geta verið í góðri stöðu þegar Ronaldo fer á endanum. Þessir menn segja ákveðna hluti til þess að koma á ákveðnu sjónarhorni sem hentar þeim.

Ronaldo er ekki með Manchester United í æfingaferðinni vegna fjölskyldulegra ástæðna en Simon Jordan telur það þvætting. ,,Hann er ekki með vegna þess að hann vill ekki vera hjá Manchester United lengur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Á von á dómi og viðurkennir að hafa deilt myndefni af ólögráða einstaklingum

Á von á dómi og viðurkennir að hafa deilt myndefni af ólögráða einstaklingum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fékk óvæntar 133 milljónir endurgreiddar frá skattinum

Fékk óvæntar 133 milljónir endurgreiddar frá skattinum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Lýsir augnablikinu sem samsæriskenningar fóru á flug og símtöl bárust á Morgunblaðið – „Er svo galið“

Lýsir augnablikinu sem samsæriskenningar fóru á flug og símtöl bárust á Morgunblaðið – „Er svo galið“
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Varpar fram kenningu um eldræðu Heimis um Arnar Svein – „Það er allt útpælt sem þessi gæi segir“

Varpar fram kenningu um eldræðu Heimis um Arnar Svein – „Það er allt útpælt sem þessi gæi segir“
433Sport
Í gær

Verðlaunaði sig með kínverskum mat

Verðlaunaði sig með kínverskum mat
433Sport
Í gær

Stuðningsmenn Tottenham bauluðu á þessa ákvörðun Thomas Frank í gær

Stuðningsmenn Tottenham bauluðu á þessa ákvörðun Thomas Frank í gær