fbpx
Mánudagur 21.júlí 2025
Fréttir

Segir að rússneski herinn sé við það að brotna á mikilvægu átakasvæði

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 9. maí 2022 07:00

Rússneskir hermenn í Úkraínu. Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það verður erfitt fyrir rússneska herinn að ná því markmiði ráðamanna í Kreml að leggja Donbas undir sig. Vladímír Pútín, Rússlandsforseti, mun bíða enn einn ósigurinn.

Þetta er mat Jacob Kaarsbo, sérfræðings hjá dönsku hugveitunni Tænketanken Europa og fyrrum sérfræðings hjá leyniþjónustu danska hersins.

Fyrsta markmið Rússa í stríðinu var að ná höfuðborginni Kyiv á sitt vald. Það mistókst og varð Pútín því að skipta um markmið og lýsti hann því yfir að það hefði allan tímann verið markmiðið að ná Donbas á vald Rússa.

Nú er um þrjár vikur síðan Rússar hófu sókn í Donbas, eftir að hafa hörfað frá Kyiv, en að mati Kaarsbo mun þeim ekki takast að leggja héraðið undir sig eða „frelsa“ það frá „úkraínskum nasistum“ en Pútín hefur haldið því fram að nasistar ráði ríkjum í Úkraínu. Þ

Í samtali við Jótlandspóstinn sagði hann að Rússar hafi eytt miklu púðri í stríðið. Þeir hafi sent fjölmennt herlið inn í Úkraínu en herliðið hafi ekki verið til orustu reiðubúið. Þeir hafi sótt fram á breiðri víglínu og því misst meira af mönnum og búnaði en ella. Stærðfræðin gangi einfaldlega ekki upp og því muni Rússar ekki ná Donbas á sitt vald.

Hann sagðist ekki telja mögulegt fyrir Rússa að hefja sókn á nýjan leik því þeir geti ekki kallað fleiri hermenn til starfa eða bætt búnað sinn. Hann benti á að breskur sérfræðingur hafi fyrir nokkru haldið því fram að rússneski herinn myndi brotna saman innan tveggja vikna. Svo bjartsýnn sé hann ekki sjálfur en telji að nú séu um tvær vikur í að rússneski herinn brotni saman. Þá geti hann ekki sótt frekar fram og muni smám saman enda í vörn.

Talið er að Rússar hafi misst allt að helming hermanna sinna og búnaðar í orustunni um Kyiv og það getur skipt sköpum í stríðinu. Kaarsbo sagði að í kjölfarið hafi hersveitir verið sameinaðar og það gefist ekki vel. Það sé ekki bara hægt að sameina hersveitir einn, tveir og þrír. Þær séu sérhæfðar. Sumar séu skriðdrekahersveitir, aðrar stórskotaliðshersveitir og enn aðrar sjái um birgðaflutninga. Það gefist ekki vel að sameina þær, það taki tíma að byggja hersveitir upp.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Katrín og fjölskylda hennar urðu fyrir barðinu á berserknum á Flúðum – „Við hjónin vorum skíthrædd“

Katrín og fjölskylda hennar urðu fyrir barðinu á berserknum á Flúðum – „Við hjónin vorum skíthrædd“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hópur manna ógnaði húsráðanda með kylfum og hnífum

Hópur manna ógnaði húsráðanda með kylfum og hnífum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sex börn Karls Erons í losti eftir að hafa lesið dánartilkynningu Moggans eftir útför hans – „Við vorum ekkert látin vita“

Sex börn Karls Erons í losti eftir að hafa lesið dánartilkynningu Moggans eftir útför hans – „Við vorum ekkert látin vita“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Gosmóða frá eldgosinu nálgast höfuðborgarsvæðið – Getur valdið sleni og höfuðverk

Gosmóða frá eldgosinu nálgast höfuðborgarsvæðið – Getur valdið sleni og höfuðverk
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ofurhuginn Baumgartner var látinn áður en hann brotlenti

Ofurhuginn Baumgartner var látinn áður en hann brotlenti
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Trump sagður hafa sent Epstein afmæliskort með teikningu af naktri konu – Forsetinn segir kortið falsað og hótar málsókn

Trump sagður hafa sent Epstein afmæliskort með teikningu af naktri konu – Forsetinn segir kortið falsað og hótar málsókn