Förðunarfræðingurinn og áhrifavaldurinn Bára Jónsdóttir, betur þekkt sem Bára Beauty, hóf fitness vegferð sína fyrir fimm árum. Hún hefur náð langt á þeim tíma, unnið fjölda titla og stefnir á að komast í atvinnumennsku í bikiní fitness. Hún var fyrst kvenna til að vinna þrjá titla á bikarmóti í fitness þegar hún var aðeins búin að æfa íþróttina í fimm mánuði.
Bára birti „fyrir og eftir“ myndir á Instagram á dögunum til að sýna hvað hún hefur bætt á sig miklum vöðvamassa og einnig sýna að allir byrja einhvers staðar og að stöðugleiki sé lykillinn að árangri.
Við heyrðum í Báru og ræddum við hana um fitness ævintýrið og lífið hennar í dag.
Báru hafði lengi langað að byrja í fitness og ákvað að láta loksins slag standa árið 2017. Fyrir það hafði hún æft súlufitness í tvö ár.
Hún byrjaði í þjálfun hjá Konráði Val Gíslasyni, eða Konna, sem er gjarnan kallaður konungur fitness hér á landi. Fimm mánuðum seinna keppti hún á sínu fyrsta móti, bikarmótinu í fitness, og gerði sér lítið fyrir og vann þrjá titla á mótinu og var þar með fyrsta konan til að ná þeim árangri.
„Þetta er náttúrulega erfitt og allt það, en samt fannst mér þetta ekki vera eins erfitt og ég hafði ímyndað mér og ég held að fólk haldi að þetta séu miklu erfiðara en þetta er,“ segir Bára og er þá sérstaklega að meina mataræðið en hún segir það skipta heilmiklu máli í fitness.
„Það gerist ekki neitt nema þú takir til í mataræðinu,“ segir hún.
Bára fór úr því að borða lítið og hugsa ekkert um næringu í að borða mun meira og hollara. „Ég er að borða miklu meira en ég gerði áður en ég byrjaði í fitness, enda snýst þetta allt um þyngd og vöðvamassa, og ég stærri nú en áður.“
Bára segir að þetta snúist um að finna rétta jafnvægið.
„Fyrir niðurskurð þarf ég yfirleitt að byrja að borða meira til að kikka inn brennslunni. En auðvitað bara „hreina“ fæðu. Því um leið og maður tekur allt út allan sykur, hveiti, sósur, mjólkurvörur og allt svona, þá er þetta orðið svo hreint sem er eftir og maður þarf að borða oftar og meira.“
Aðspurð af skyndibita- og sósuelskandi blaðamanni hvort það verði ekki leiðinlegt að borða svona „hreina“ fæðu svarar Bára neitandi. „Því ég leyfi mér allt sem ég vil um helgar. Ég elska líka mat og elska pítsur og leyfi mér að borða það sem ég vil á laugardögum,“ segir hún.
Bára er núna í undirbúningstímabili fyrir fitness, sem þýðir að hún er að reyna að bæta á sig vöðvum og stækka sig áður en niðurskurður hefst.
„Ég er ekki með neitt harðkjarna prógram núna, ég er komin á þann stað að ég borða yfir heildina hollt. Þetta er svo huglægt, ef maður er að banna sér hluti og maður fer út í daginn hugsandi að maður má ekki hitt og þetta, þá fer hugurinn að vinna á móti manni. Í staðinn fyrir að minna sig á markmiðið, eins og ég geri, minni mig að hverju ég er að stefna og að þetta sé ástríðan mín, þar af leiðandi langar mig ekkert í þennan mat lengur,“ segir hún.
Áður en Bára byrjaði í fitness pældi hún ekkert í mataræðinu. „Ég borðaði örugglega hálft kíló af nammi á hverju kvöldi. Ég borðaði bara núðlur og þess háttar, ekki næringaríkan mat, og borðaði oft aðeins tvisvar yfir daginn. En um leið og maður fer að breyta til, og er búinn að vera á „hreinni“ fæðu svolítið lengi, þá finnur maður hversu vond áhrif sukkmaturinn hefur á mann,“ segir hún og nefnir dæmi.
„Eins og ef ég leyfi mér á laugardegi þá vakna ég eins og ég sé pínu þunn á sunnudeginum. Nammið og pítsan, maður er svona úff, með þungan hjartslátt og líður illa. Sykurinn hefur þau áhrif.“
Er eitthvað leyndarmál eða trix við að stækka vöðvana?
„Það er allt í því að mæta, bara „stick to the program.“ Þetta tekur tíma. Ég er núna búin að gera þetta í fimm ár og ég mæti eiginlega alla daga vikunnar í ræktina,“ segir Bára og ítrekar að stöðugleiki sé lykillinn.
Bára hefur keppt nokkrum sinnum erlendis á Arnold Classic, nú síðast í september 2021 þar sem hún lenti í fjórða sæti. „Ég er alltaf að stefna að því að komast í atvinnumennsku (e. professional league). Ef þú vinnur „over-all“ titil á mótinu, á þeim mótum sem eru með „pro-card“ í boði, þá færðu „pro-card“ og kemst í atvinnumennsku.“
Eins og fyrr segir er Bára í undirbúningstímabili og venjulegur dagur byrjar á því að hún fer út að hlaupa með hundana sína tvo, fer síðan í vinnu og eftir vinnu fer hún í ræktina. Hún kennir einnig pole fitness tvisvar í viku.
View this post on Instagram
Þessi úreltu hugmyndir um að vöðvar geri konur karlmannlega í vextinum, vöðvar séu ekki kvenlegir og svo framvegis hafa fengið að lifa góðu lífi um árabil en kraftlyftingakonurnar okkar, CrossFit dæturnar, fitness drottningarnar og aðrar öflugar konur hafa sýnt að svo sé ekki.
Aðspurð hvort hún hafi einhvern tíma fengið neikvæðar eða leiðinlegar athugasemdir varðandi útlit sitt svarar Bára neitandi.
„Ég hef aldrei fengið slíkar athugasemdir en hef orðið vitni að því, það eru alltaf einhverjir sem koma með leiðinleg komment. Maður á aldrei að gera neitt til að geðjast öðrum,“ segir hún.
„Mér finnst fallegt að vera hraustur og heilbrigður, og líta út fyrir að vera sterk. Þetta er það sem mér finnst fallegt og mér er alveg sama hvað öðrum finnst,“ segir hún og hlær.
Í bikiní fitness eru ákveðnir útlitsstaðlar, eins og að axlir og rass eigi að vera í samræmi og mittið mjótt, svo kallað „stundarglasa“ vaxtalag.
„Þessir vöðvar, eins og tvíhöfðinn, trapparnir og mittið, ég held að það séu vöðvar sem fólk segir oft að sé ókvenlegt og það eru einmitt vöðvar sem maður þarf að passa að æfa ekki í bikiní fitness,“ segir hún og bætir við að hún æfir venjulega fætur, rass og axlir, stundum bak en eiginlega aldrei hendur.