Rætt var um komandi ársþing Knattspyrnusambands Íslands í þættinum 433.is sem sýndur var á Hringbraut í gærkvöldi. Ljóst er að kosningabarátta er hafin á milli Vöndu Sigurgeirsdóttur, núverandi formanns sambandsins og Sævars Péturssonar, framkvæmdarstjóra KA, um formannsembættið.
Það var ljóst fyrir nokkrum dögum að Sævar myndi bjóða sig fram til formanns KSÍ en Vanda hafði áður gefið það út að hún hyggðist bjóða sig fram að nýju.
,,Þetta er akkúrat það sem við kölluðum eftir. Með þessu fáum við meiri umræðu inn í knattspyrnuhreyfinguna um næstu skref eftir þessi ókyrrðarár,“ sagði Aron Guðmundsson, blaðamaður 433.is og Fréttablaðsins um stöðu mála fyrir ársþingið.
Aron segir þetta gott fyrir knattspyrnuhreyfinguna í heild sinni. ,,Að fá umræðuna á milli frambjóðenda sem og annarra einstaklinga innan knattspyrnuhreyfingarinnar til þess að taka ákvörðun um næstu skref sambandsins.“
Benedikt Bóas var umsjónarmaður 433.is í gærkvöldi, hann hefur áður kallað eftir því að forsvarsmenn aðildarfélaga KSÍ, láti í sér heyra á ársþingum sambandsins.
,,Ég hef nú áður kallað eftir því að það verði nú einhver annar að tala þarna á ársþingi KSÍ heldur en FH-bræðurnir. Það verður nú að vera einhverskonar umræða þarna. Það hlýtur að vera að formenn og aðrir stígi nú fram og tali um fótbolta. Þegar að Vanda var kosin, þá talaði ekki neinn.“
,,Ef þeir (formenn og forsvarsmenn) bera hag íslenskrar knattspyrnu fyrir brjósti, þá gera þeir það,“ bætti Aron þá við í þættinum 433.is sem sýndur var á Hringbraut í gær.
Þátt 433.is í heild sinni má sjá hér fyrir neðan: