fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Stjarnan enn einu sinni sökuð um framhjáhald – Bauð raunveruleikastjörnu með sér heim skömmu eftir að kærastan hafði stutt við hann á vellinum

433
Sunnudaginn 9. janúar 2022 13:30

Chloe Brockett. Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjarnan Chloe Brockett segir að Jack Grealish, leikmaður Manchester City og enska landsliðsins, hafi boðið henni með sér í húsið hans er þau voru í fríi á sama stað á Mykonos í Grikklandi síðastliðið sumar. Grealish er í sambandi með annari konu, Sasha Attwood.

Hinn 26 ára gamli Grealish skellti sér til Mykonos eftir Evrópumót landsliða í sumar. Þar á hann að hafa hitt Brockett og síðar boðið henni með sér heim.

Jack Grealish og Sasha Attwood.

,,Það vildi svo til að Jack var í Mykonos, á sama stað og ég og á sama tíma,“ sagði Brockett við The Sun. ,,Ég hafði aldrei talað við hann eða hitt áður. Ég vissi ekki eini sinni hver hann var fyrir Evrópumótið.“ 

,,Mér fannst hann heillandi og vinalegur. Svo er hann auðvitað mjög myndarlegur. Hann virkaði eins og indæll náungi.“

Þá er Grealish sagður hafa haft samband við Brockett einu sinni aftur í þessu sama fríi. Þetta gerðist aðeins nokkrum dögum eftir að Attwood, kærasta hans, hafði stutt hann á EM.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Grealish er sakaður um framhjáhald. Hann hefur áður verið sakaður um að halda framhjá með þeim Emili Atack og Amber Gill. Sjálfur segir hann ekkert til í því.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum